Hvernig mál tekur umboðsmaður barna fyrir?
Umboðsmaður barna reynir að kanna allar ábendingar sem embættinu berast og varða börn og unglinga á einhvern hátt. Umboðsmaður metur það hins vegar sjálfur hvort honum finnst nauðsynlegt að gera eitthvað í málinu.
Umboðsmaður barna sækist eftir að vera í góðu sambandi við börn og unglinga og heyra beint frá þeim sjálfum um þau mál sem þeim finnst mikilvægt að tekin verði til meðferðar.
Umboðsmaður barna lætur til sín taka á fjölmörgum sviðum. Í rauninni er honum ekkert óviðkomandi ef það varðar hagsmuni, þarfir og réttindi barna og unglinga. Umboðsmaður lætur sig varða börn sem lögð eru í einelti, börn sem eru í fíkniefnaneyslu, börn sem þurfa á sérstakri hjálp að halda vegna geðrænna, líkamlegra eða tilfinningalegra vandamála. Hann hugsar um börn sem búa í bæjum og sveitum, börn sem eiga foreldra sem sinna þeim ekki, börn sem farið er illa með eða er misþyrmt og yfirleitt öll börn, hver sem þau eru, og hvar sem þau búa á Íslandi.
Umboðsmaður barna vill beita sér fyrir því að dregið verði úr hvers kyns ofbeldi í umhverfi barna og unglinga; í skólanum, á götunni, í sjónvarpinu og innan veggja heimilisins. Í þessari baráttu þurfa allir að taka höndum saman því við eigum ekki að sætta okkur við ofbeldi.
Umboðsmaður vill vinna að því að menning og listir verði aðgengilegri fyrir börn og unglinga; að börn og unglingar eigi jafna möguleika á að sækja leikhús, fara á tónleika og myndlistarsýningar, í kvikmyndahús, á íþróttakappleiki o.fl.
Umboðsmaður vill stuðla að því að börnum og unglingum sé kennt að meta menningu okkar Íslendinga, menningu annarra þjóða, náttúruna og umhverfi okkar, fjölskyldulífið og vináttuna.
