Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Tómstundir

Mikilvægt er að hver og einn finni frístundastarf við sitt hæfi og að sem flestir geti tekið þátt í einhvers konar félags- og tómstundastarfi.

Hverju hefur þú mestan áhuga á?

Þú skalt endilega spyrjast fyrir um hvað er í boði í nágrenni þínu. Mamma og pabbi eða kennarinn þinn geta örugglega hjálpað þér að finna út hvað hentar þér best. Yfirleitt geta sveitarfélögin (borgin eða bærinn) veitt upplýsingar um það sem er í boði á svæðinu. Sum sveitarfélög eru t.d. með sérstakar heimasíður þar sem er að finna upplýsingar um íþróttir, listir og aðrar tómstundir.

Tómstunda- og félagsstarf hefur verið skilgreint sem skipulögð starfsemi sem fram fer innan samtaka og hreyfinga þar sem þátttakendur starfa saman í frístundum sínum að hugsjónum, markmiðum og áhugamálum sem þeir sjálfir meta að verðleikum. Þátttaka ungs fólks í félags- og tómstundastarfi er mjög mikilvægur liður í þátttöku þeirra í samfélaginu og hefur mikið uppeldislegt og forvarnarlegt gildi. Þátttaka í slíku starfi kennir ungu fólki að vinna saman, taka ákvarðanir í samvinnu við aðra og þar fer fram þjálfun í að koma fram og tjá skoðanir sínar.

Á Íslandi stendur ungu fólki til boða mjög fjölbreytt og öflugt tómstunda- og félagsstarf, s.s. á sviði íþrótta, útivistar, menningar og lista, trúarlegrar starfsemi og stjórnmála svo eitthvað sé nefnt. Mikilvægt er að hver og einn finni eitthvað við sitt hæfi og að allir geti tekið þátt í einhvers konar félags- og tómstundastarfi.

Hér á eftir er að finna yfirlit yfir helstu svið tómstundastarfs fyrir börn og unglinga á Íslandi. Þessi upptalning er ekki tæmandi og ýmislegt fleira stendur börnum og unglingum til boða.

Íþróttir
Listir og menning
Ungmennahús
Félagsmiðstöðvar og annað á vegum sveitarfélaganna

Samtök nemenda í framhaldsskólum
Skátahreyfingin
Slysavarnarfélagið Landsbjörg
Trúarlegt starf trúarleg samtök

Ungmennaskiptahreyfingar
Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka
Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands
Ungliðastarf fatlaðra
Bindindishreyfingar

Íþróttir

Íþróttaiðkun felur að sjálfsögðu fyrst og fremst í sér áherslu á hreyfingu, fimi og heilbrigt líferni en auk þess þjálfun í samvinnu og skipulagningu.

Ungu fólki stendur til boða mjög umfangsmikil og fjölbreytt íþróttastarfsemi sem fram fer innan hinna fjölmörgu aðildarfélaga að Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og Ungmennafélagi Íslands (UMFÍ). Á heimasíðum ÍSÍ og UMFÍ er hægt að nálgast upplýsingar um ýmsar íþróttagreinar, íþróttafélögin og íþróttasamböndin.

 Listir og menning

Flestum unglingum finnst gaman að skapa og njóta lista og menningar. Ýmsir skólar og námskeið á sviði myndlistar, tónlistar, danslistar og leiklistar standa börnum og unglingum til boða út um allt land. Þá starfa oft kórar, hljómsveitir, leikfélög og kvikmyndaklúbbar innan skólanna og félagsmiðstöðvanna. Best er að fá upplýsingar um hvað er í boði á þínu svæði hjá skólanum eða sveitarfélaginu/bænum/hverfismiðstöðinni.

Ungmennahús

Mikil breyting hefur átt sér stað á síðustu árum í tengslum við tómstundir fyrir ungt fólk, 16 ára og eldra en aukin þörf fyrir framboð á tómstundastarfi fyrir þennan aldurshóp hefur komið fram. Víða um landið hafa verið stofnuð sk. ungmennahús sem standa ungmennum á aldrinum 1625 ára til boða. Í ungmennahúsunum getur ungt fólk hist, notið veitinga, lesið blöð, sinnt áhugamálum sínum og tekist á við fjölbreytt verkefni.

Félagsmiðstöðvar og annað á vegum sveitarfélaganna

Í flestum sveitarfélögum eru reknar félagsmiðstöðvar fyrir nemendur í efstu bekkjum grunnskóla. Félagsmiðstöðvar eru vettvangur fyrir unglinga til að stunda ýmiss konar afþreyingu. Sem dæmi má nefna að unglingar fá þar tækifæri til að koma að skipulagningu viðburða og ýmissa verkefna og taka þátt í margvíslegu tómstundastarfi, þemakvöldum, listviðburðum, klúbbastarfi o.s.frv.

Sveitarfélögin standa auk þess fyrir leikjanámskeiðum, sumarnámskeiðum og ýmsu öðru. Einnig fer fram umtalsvert félags- og tómstundastarf í grunnskólum, bæði starfsemi á vegum nemendanna sjálfra og starfsemi á vegum sveitarfélaganna. 

Samtök nemenda í framhaldsskólum

Nemendafélög starfa innan flestra framhaldsskóla og standa þau fyrir öflugu félags- og tómstundastarfi. Félag framhaldsskólanema eru hagsmunasamtök framhaldsskólanema en þau samtök standa einnig fyrir félagsstarfi s.s. leiðtoganámskeiðum, söngvakeppni og ræðukeppni.

Skátahreyfingin

Bandalag íslenskra skáta (BÍS) hefur starfað á Íslandi frá árinu 1911. Markmið skáta er að þroska börn og ungt fólk til að verða sjálfstæðir, virkir og ábyrgir einstaklingar í samfélaginu. Mikil áhersla er lögð á útilíf, alþjóðasamstarf og ýmsa þjálfun í hagnýtum störfum. Starfsemi skátafélaga nær til barna og unglinga á aldrinum 718 ára og felst aðallega í vikulegum samkomum, dagsferðum, helgarútilegum, skátamótum o.s.frv.

Slysavarnafélagið Landsbjörg

Slysavarnafélagið Landsbjörg býður upp á umtalsvert unglingastarf í unglingadeildum félagsins. Samtökin standa fyrir landsmóti unglingadeilda og halda námskeiði fyrir ungmenni í Útivistarskólanum Gufuskálum á Snæfellsnesi auk annarrar þjálfunnar. Starfsemi unglingadeilda fer fram víðs vegar um landið.

Trúarlegt starf – trúarleg samtök

Trúarlegt starf fyrir ungt fólk fer fram á vegum ýmissa sjálfstæðra samtaka s.s. KFUM og KFUK, KSS o.fl. auk þess sem félagsstarf fyrir börn og unglinga er í boði í söfnuðum þjóðkirkjunnar og annarra trúfélaga. Margs konar starfsemi fer fram á vegum þessara samtaka og safnaða og má nefna sem dæmi sumarbúðir, leikjanámskeið, vikulega fundi og fræðslu, fermingarstarf, kórastarf, sunnudagaskóla og æskulýðsfélög.

Ungmennaskiptahreyfingar

Markmiðið með ungmennaskiptahreyfingum er að efla fræðslu um ólíka menningarheima og auka samskipti milli ungmenna í mismunandi löndum. AFS á Íslandi eru alþjóðleg fræðslu- og sjálfboðaliðasamtök sem m.a. standa fyrir nemendaskiptum fyrir ungt fólk á aldrinum 1518 ára. Samtökin Alþjóðleg ungmennaskipti (AUS) hafa það að aðalmarkmiði að senda íslensk ungmenni til þess að vinna sjálfboðaliðastörf í Evrópu eða þriðja heiminum og taka á móti ungmennum til að vinna sjálfboðaliðastörf hér. Sjálfboðaliðastörfin felast í ýmiss konar góðgerðarstarfsemi.  Alþjóðlegar sumarbúðir barna (CISV) á Íslandi standa fyrir alþjóðlegum sumarbúðum á Íslandi fyrir mismunandi aldurshópa.

Ungliðahreyfingar stjórnmálaflokka

Ungliðastarf fer fram innan stjórnmálaflokkanna og miðar það yfirleitt við aldurinn 1635 ára. Félagsstarfið felst aðallega í fundarhöldum, samkomum og blaðaútgáfu og þar fá ungmenni þjálfun í framkomu, í að tjá skoðanir sínar og stjórnmálaumræðu. Ungliðarnir starfa einnig að því að kynna stefnumál flokksins fyrir öðru ungu fólki og taka þátt í kosningabaráttu og öðru starfi flokkanna.

Ungliðahópur Samtakanna 78

Ungliðahópur starfar innan Samtakanna '78 og er ætlaður samkynhneigðum og tvíkynhneigðum ungmennum á aldrinum 14–20 ára. Ungliðarnir hittast hvert sunnudagskvöld klukkan 20.00 í húsnæði Samtakanna ´78.

Ungmennahreyfing Rauða kross Íslands

Starfsemi ungmennahreyfingar Rauða kross Íslands (URKÍ) felst í því að skapa ungu fólki vettvang til þess að sinna Rauða kross starfi og auka þannig þátttöku og áhrif ungs fólks í Rauða krossinum. Starfið er hugsað fyrir ungt fólk, 30 ára og yngra. Starfið hefur m.a. falist í samnorrænu átaki gegn ofbeldi, fatasöfnun, fataverslun fyrir notaðan fatnað og ýmsum fjáröflunum og góðgerðarstarfsemi.

Ungliðastarf fatlaðra

Auk hefðbundins tómstundastarfs stendur fötluðum börnum og ungmennum til boða ungliðastarf á vegum samtaka blindra, heyrnarlausra og fatlaðra. Starfsemi slíkra samtaka felst m.a. í reglulegum fundum og samverustundum, sumarbúðum, ferðum og námskeiðum svo að eitthvað sé nefnt. Ungliðar þessara samtaka vinna auk þess að ýmsum hagsmuna- og réttindamálum. Starfsemin er ætluð ungmennum frá 1335 ára aldurs.

Bindindishreyfingar

Margs konar félagsstarf fyrir börn og unglinga fer fram á vegum bindindishreyfinga á Íslandi. Bindindishreyfingarnar leggja áherslu á gildi þess að neyta ekki áfengis og ólöglegra vímuefna. Samtök íslenskra ungtemplara (ÍUT) eru forvarnasamtök og sjá m.a. um undirbúning og framkvæmd bindindismótanna í Galtalækjaskógi og taka þátt í ýmsum vímuvörnum. Innan IOGT er starfrækt barnahreyfing, fyrir börn eldri en sex ára, og ungmennahreyfing, fyrir ungt fólk á aldrinum 1435 ára. Einnig er starfrækt ungmennadeild innan bindindisfélags ökumanna.







 



Mynd af unglingum við lærdóm

Umboðsmaður barna...

... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
 
... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
 
... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
 
... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra