Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Nemendur til áhrifa í grunnskólum

Hlutverk grunnskóla er skilgreint í 2. gr. grunnskólalaga nr. 91/12008. Þar segir í 1. mgr. að hlutverk grunnskólans, í samvinnu við heimilin, sé m.a. að búa nemendur undir líf og starf í lýðræðisþjóðfélagi sem er í sífelldri þróun.

Nemendafélag
Með virkri starfsemi nemendafélags fá nemendur tækifæri til lýðræðislegrar þátttöku í hagsmunamálum sínum og þjálfun í lýðræðislegum vinnubrögðum. 10. grein laga um grunnskóla fjallar um nemendafélög (sem í fyrri lögum um grunnskóla voru nefnd nemendaráð):

Við grunnskóla skal starfa nemendafélag og er skólastjóri ábyrgur fyrir stofnun þess. Nemendafélag vinnur m.a. að félags-, hagsmuna- og velferðarmálum nemenda og skal skólastjóri sjá til þess að félagið fái aðstoð eftir þörfum.
Nemendafélag hvers skóla setur sér starfsreglur, m.a. um kosningu í stjórn félagsins og kosningu fulltrúa skólaráðs skv. 2. mgr. 8. gr.

Í athugasemd um þessa grein segir í frumvarpinu að eðlilegt sé að hver skóli þrói skipan mála eftir því sem hentar í skólanum með nemendalýðræði og þátttökulýðræði að leiðarljósi. Ekki er sérstaklega bundið í lögum að stjórn skuli skipuð fulltrúum úr öllum árgöngum skólans en eðlilegt er að fulltrúar allra árganga geti tekið þátt í starfi félagsins eftir því sem þroski nemenda leyfir. Í athugasemdum við 30. gr. grunnskólalaga sem fjallar um skólareglur segir að fulltrúar nemenda skuli taka þátt í gerð skólareglna.

Skólaráð
Einblöðungur um skólaráðÍ grunnskólalögum er mælt fyrir um það að tveir fulltrúar nemenda skuli eiga sæti í skólaráði, sem skylt er að starfrækja við hvern grunnskóla. Skólaráð er samráðsvettvangur skólastjóra og skólasamfélags um skólahald. Skólastjóri ber ábyrgð á stofnun skólaráðs og stýrir starfi þess sem skilgreint er í 8. gr. grunnskólalaga. Skólastjóri skal boða til sameiginlegs fundar skólaráðs og stjórnar nemendafélags a.m.k. einu sinni á ári.

Skólaráð tekur þátt í stefnumörkun fyrir skólann og mótun sérkenna hans. Skólaráð fjallar um skólanámskrá skólans, árlega starfsáætlun, rekstraráætlun og aðrar áætlanir um skólastarfið. Skólaráð skal fá til umsagnar áætlanir um fyrirhugaðar meiri háttar breytingar á skólahaldi og starfsemi skóla áður en endanleg ákvörðun um þær er tekin. Skólaráð fylgist almennt með öryggi, aðbúnaði og almennri velferð nemenda. Skólanefnd getur með samþykki sveitarstjórnar falið skólaráðum einstakra skóla ákveðin verkefni þessu til viðbótar.

Skólaráð skal skipað níu einstaklingum til tveggja ára í senn. Í skólaráði skulu eiga sæti
- skólastjóri
- tveir fulltrúar kennara,
- einn fulltrúi annars starfsfólks skólans,
- tveir fulltrúar nemenda,
- tveir fulltrúar foreldra,
- einn fulltrúi grenndarsamfélags eða viðbótarfulltrúi úr hópi foreldra.

Opna einblöðung umboðsmanns barna um skólaráð (PDF)









Mynd af unglingum við lærdóm

Umboðsmaður barna...

... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
 
... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
 
... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
 
... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra