Börn til áhrifa í fjölskyldunni
Í 28. gr. barnalaga nr. 76/2003 er fjallað um inntak forsjár. Þar segir í 6. mgr:
Foreldrum ber að hafa samráð við barn sitt áður en málefnum þess er ráðið til lykta eftir því sem aldur og þroski barnsins gefur tilefni til. Skal afstaða barns fá aukið vægi eftir því sem barnið eldist og þroskast.
Þátttaka barna ætti að vera hluti af daglegu lífi þeirra. Börn sem finna að þau eru virt að verðleikum og fá að hafa áhrif á fjölskyldulífið eru líklegri til að eiga góð samskipti við foreldra sína sem og aðra í samfélaginu. Í 43. gr. barnalaga er fjallað um rétt barns til að tjá sig þegar foreldrar þess deila vegna forsjár eða umgengni. Í þessu samhengi verður að ítreka það að hér er um rétt barna að ræða en ekki skyldu.
