Um Sameinuðu þjóðirnar
Sameinuðu þjóðirnar eru samtök ríkja sem hafa sameinast um að vinna að friði og að efnahagslegum og félagslegum framförum í heiminum. Ísland hefur verið aðili að Sameinuðu þjóðunum síðan árið 1946.
Sameinuðu þjóðirnar koma ekki fram fyrir hönd neinnar sérstakrar ríkisstjórnar eða þjóðar. Þær eru frekar eins konar félag fullvalda ríkja og geta aðeins gert það sem aðildarríkin vilja að þær geri. Sameinuðu þjóðirnar eru eins konar alþjóðavettvangur þar sem sjálfstæð ríki hittast til að ræða heimsmál sem hafa áhrif á einstök lönd eða löndin í sameiningu. Allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna er samkoma fulltrúa allra meðlima Sameinuðu þjóðanna sem hittast a.m.k. árlega og kjósa um ýmis mál. Þingið getur ályktað í tillöguformi um hvers kyns alþjóðamál.
Tilgangur Sameinuðu þjóðanna er fjórþættur:
Ýmsar stofnanir eru starfræktar á vegum Sameinuðu þjóðanna, t.d. Alþjóða matvælastofnunin, Alþjóða heilbrigðisstofnunin, Flóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna.
Nánari upplýsingar um Sameinuðu þjóðirnar er að finna á vefsíðu Félags Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.