Ný sambönd foreldra
Skilnaður / sambúðarslit foreldra
Gott að hafa í huga
Réttindi barna þegar foreldrar skilja eða slíta sambúð
Meiri upplýsingar
Aðstoð og ráðgjöf í boði
Réttindi barna þegar foreldrar skilja eða slíta sambúð
Meiri upplýsingar
Umboðsmaður mælir með bókinni Hvað er málið? eftir þær Berglindi Sigmarsdóttur og Sigríði Birnu Valsdóttur. Hana hægt að fá í bókabúðum og á bókasöfnum. Ýmislegt úr bókinni má líka nálgast hér. Á síðunni www.doktor.is er einnig áhugaverð grein sem heitir Skilnaður og börn.
Á síðunni Ef bara ég hefði vitað er fjallað um sálrænan stuðning fyrir unglinga. Smelltu hér til að lesa meira um áhrif skilnaðar á börn og unglinga.
Aðstoð og ráðgjöf í boði
Ef þér líður illa vegna skilnaðar foreldra þinna er yfirleitt best að ræða við einhvern sem þú treystir, t.d. foreldra, stjúpforeldra, fósturforeldra, afa, ömmur, frændfólk eða vin/vinkonu. Ef þér finnst það erfitt eða finnst að enginn hlusti á þig getur þú leitað til eftirtalinna aðila:
Fjölskylduráðgjöf sveitarfélaga
Mörg sveitarfélög bjóða íbúum sínum upp á fjölskylduráðgjöf. Þangað geta börn leitað til að ræða og fá lausn á vandamálum sínum. Hér er listi yfir öll sveitarfélög landsins. Með því að smella á sveitarfélagið þitt kemst þú inn á heimasíðu þess. Hafðu samband við sveitarfélagið þitt til að fá upplýsingar um fjölskylduþjónustuna.
Heilsugæslustöðvar
Krakkar geta leitað til heilsugæslustöðvanna með alls konar spurningar og vandamál sem tengjast heilsu og líðan. Hérna er listi yfir allar heilsugæslustöðvar á landinu, heimasíður þeirra, netföng o.fl.
Hjálparsími Rauða krossins, 1717
Hjálparsíminn 1717 er gjaldfrjáls og er opinn allan sólarhringinn fyrir þá sem þurfa aðstoð vegna depurðar, kvíða, þunglyndis eða sjálfsvígshugsana. Tilgangurinn með hjálparsíma Rauða krossins er að vera til staðar fyrir þá sem vilja þiggja aðstoð til að sjá tilgang með lífinu.
Kirkjan
Mörgum finnst gott að tala við sóknarprestinn sinn eða djákna um viðkvæm og persónuleg mál enda eru þeir bundnir trúnaði. Hér er hægt að nálgast símanúmer allra presta landsins. Einnig er hægt að hafa samband við Fjölskylduþjónustu kirkjunnar sem er á Klapparstíg 25–27 í Reykjavík. Síminn er 562–3600.
Starfsfólk skólans eða félagsmiðstöðvarinnar
Grunnskólanemar eiga að geta leitað til umsjónarkennara, námsráðgjafa, skólahjúkrunarfræðings eða starfsfólks félagsmiðstöðvarinnar með trúnaðarmál.
Tótalráðgjöfin
Tótalráðgjöfin er ætluð ungu fólki sem vantar aðstoð og ráðgjöf fagfólks til að leysa úr alls kyns vandamálum. Hægt er að hringja í síma 520–4600, koma (í Hitt húsið, Pósthússtræti í Reykjavík) eða senda tölvupóst. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.totalradgjof.is.
