Heimilisofbeldi
Ofbeldi gegn börnum kemur öllum við
Hvað er heimilisofbeldi?
Áhrif heimilisofbeldis á börn og unglinga
Aðstoð og ráðgjöf í boði
Ofbeldi gegn börnum kemur öllum við
Í 28. gr. barnalaga segir: „Forsjá barns felur í sér skyldu foreldra til að vernda barn sitt gegn andlegu og líkamlegu ofbeldi og annarri vanvirðandi háttsemi“. Þetta þýðir að ekkert barn á að þurfa að þola ofbeldi, allra síst á heimili sínu. Friðhelgi heimilisins nær ekki til ofbeldis.
Hvað er heimilisofbeldi?
Heimilisofbeldi er yfirleitt mjög vel falið leyndarmál. Heimilisofbeldi birtist í fleiri myndum en barsmíðum og líkamsmeiðingum. Lítilsvirðing, höfnun, niðurlæging, hótanir og einelti eru dæmi um andlegt ofbeldi. Margir foreldrar í ofbeldissamböndum halda að hægt sé að halda börnum sínum fyrir utan ofbeldið, en svo er ekki raunin. Börnin þjást einnig þó að ofbeldinu sé ekki beinlínis beint að þeim eða þau verði beint vitni að því. Ef barnið er t.d. í öðru herbergi og heyrir og skynjar hvað er að gerast hefur það mjög slæmar afleiðingar á sálarlífið. Það sama gildir um barn sem horfir upp á foreldri í brjálæðiskasti, niðurbrotið foreldri, jafnvel með áverka, eða brotna hluti heimilisins.
Þegar börn og unglingar hljóta líkamlega áverka eftir ofbeldi á heimili stafar það oft af því að foreldrarnir eiga í átökum og börnin lenda á milli, yngri börnin geta ekki forðað sér en unglingarnir eru gjarnan að reyna að hindra heimilisofbeldið. Allra verst er auðvitað þegar foreldrar beita börn sín refsingum (oft tilviljunarkenndum) sem beinlínis er ætlað að skaða og niðurlægja þau.
Ólíkt því sem margir virðast halda eru flengingar, öskur og niðurlægingar líka ofbeldi. Flestir sem beita börn sín slíku ofbeldi eru ekkert endilega vondir einstaklingar. Sumir hreinlega vita ekki betur, aðrir eiga erfitt með að stjórna tilfinningum sínum og aðrir eru einfaldlega undir of miklu álagi.
Þó að ofbeldi tengist hörku á það ekki rætur í persónulegum styrk, heldur þvert á móti í vanmætti. Sá sem beitir ofbeldi er yfirleitt óöruggur og býr yfir takmarkaðri hæfni í samskiptum. Ofbeldið er venjulega frumstæð aðferð til að bæta sér upp einhvers konar veikleika. Flestir ofbeldismenn beita einungis ofbeldi á heimili sínu, þ.e.a.s. þeir misþyrma nær eingöngu sínum nánustu; maka og börnum.
Áhrif heimilisofbeldis á börn og unglinga
Álagið við að búa við stöðuga spennu, stjórnleysi og kvíða hefur margvíslegar afleiðingar fyrir börn og unglinga. Þegar ofbeldið liggur alltaf í loftinu á heimilinu og er orðið að fjölskylduleyndarmáli er tilfinningaþroski og sjálfsmynd barna og unglinga í mikilli hættu. Börn sem búa við heimilisofbeldi ná oft ekki að mynda eðlileg tengsl við aðra og því eiga þau oft við ýmsa skapgerðar- og hegðunarerfiðleika að etja. Á skólaaldri er algengt að börnin telji ofbeldið sér að kenna og reyna því að vera „góð“ til að ástandið batni. Svo fyllast þau jafnan sektarkennd, vonleysi og kvíða þegar ofbeldið heldur áfram. Þessir samskipta- og tilfinningalegu erfiðleikar verða þess valdandi að sumir unglingar taka upp andfélagslega hegðun á meðan aðrir taka á sig ábyrgðina á fjölskyldunni. Skömmin, niðurlægingin, vonbrigðin, stjórnleysið og stöðugur kvíði gerir það að verkum að sumir eru alla ævi að glíma við afleiðingar ofbeldisins.
Heimilisofbeldi linnir yfirleitt ekki nema gripið sé til markvissra aðgerða. Óljós loforð duga skammt. Ítarlegri upplýsingar um heimilisofbeldi er m.a. að finna á undirsíðunni um ofbeldi á vef Kvennaathvarfsins. Hér er hægt að skoða ýmsa bæklinga Kvennaathvarfsins. Einnig er vert að lesa grein Vilborgar G. Guðnadóttur, „Ofbeldi gegn börnum og unglingum“, sem birt er á síðunni www.doktor.is.
Barnaverndarnefndir
Öllum ber skylda til að tilkynna barnaverndarnefnd um vanrækslu eða ofbeldi gegn börnum. Börn geta leitað til starfsmanna nefndanna og fengið þá til að kanna heimilisaðstæður með það fyrir augum að bæta ástandið. Hringið í Neyðarlínuna í síma 112 og biðjið um samband við barnaverndarnefnd í ykkar sveitarfélagi. Nánari upplýsingar um starfsemi barnaverndarnefndar eru á heimasíðu Barnaverndarstofu en hún hefur umsjón og eftirlit með starfsemi barnaverndarnefnda á landinu. Allar nánari upplýsingar um tilkynningar og barnaverndarmál er að finna í barnaverndarlögum.
Fjölskylduráðgjöf sveitarfélaga
Mörg sveitarfélög bjóða íbúum sínum upp á félagslega ráðgjöf. Börn geta yfirleitt hringt eða komið sjálf og rætt málin eða beðið um aðstoð. Næstu skref eru svo ákveðin í samráði við foreldra eða barnaverndarnefnd. Hafðu samband við sveitarfélagið þitt til að fá upplýsingar um fjölskylduþjónustuna. Hérna er hægt að nálgast upplýsingar um sveitarfélögin á landinu og heimasíður þeirra.
Heilsugæslustöðvar
Krakkar geta leitað til heilsugæslustöðvanna með alls konar spurningar og vandamál sem tengjast heilsu og líðan. Hérna er listi yfir allar heilsugæslustöðvar á landinu, heimasíður þeirra, netföng o.fl. Ef þú ert með áverka eftir heimilisofbeldi, skaltu endilega láta starfsfólk heilsugæslustöðvarinnar líta á þá.
Hjálparsími Rauða krossins 1717
Þessi sími er opinn öllum þeim sem líður illa eða finnst lítill tilgangur með lífinu.
Karlar til ábyrgðar
Verkefni á vegum félags- og tryggingamálaráðuneytisins. Eina sérhæfða meðferðaúrræðið fyrir karla sem beita ofbeldi á heimilum hér á landi. Allar upplýsingar um verkefnið eru á www.karlartilabyrgdar.is.
Lögreglan
Á vef lögreglunnar er undirsíða um ofbeldi með upplýsingum um hvað hægt er að gera verði fólk fyrir ofbeldi eða hótunum. Þar er einnig hægt að skoða bækling fyrir þolendur afbrota.
Kirkjan
Mörgum finnst gott að tala við sóknarprestinn sinn um viðkvæm og persónuleg mál enda eru prestar bundnir trúnaði. Einnig er hægt að hafa samband við Fjölskylduþjónustu kirkjunnar sem er á Klapparstíg 25–27 í Reykjavík. Síminn er 562–3600.
Samtök um kvennaathvarf
Kvennaathvarfið er fyrir konur og börn þeirra þegar dvöl í heimahúsum er þeim óbærileg vegna andlegs eða líkamlegs ofbeldis eiginmanns, sambýlismanns eða annarra heimilismanna. Til að koma í viðtal eða dvöl þarf samþykki forsjáraðila. Boðið er upp á símaráðgjöf allan sólarhringinn í síma 561–1205. Þangað geta börn og unglingar hringt til að fá stuðning og ráð án þess að gefa upp nafn sitt. Heilmiklar upplýsingar um heimilisofbeldi er að finna á heimasíðu Kvennaathvarfsins, sérstaklega á undirsíðunni um ofbeldi.
Starfsfólk skólans
Grunnskólanemar eiga að geta leitað til umsjónarkennara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðings með trúnaðarmál. Ef um heimilisofbeldi er að ræða geta þessir aðilar gefið ráð um næstu skref.
Tótalráðgjöfin
Tótalráðgjöfin er ætluð ungu fólki sem vantar aðstoð og ráðgjöf fagfólks til að leysa úr alls kyns vandamálum. Hægt er að hringja í síma 520–4600, koma (í Hitt húsið, Pósthússtræti í Reykjavík) eða senda tölvupóst. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðunni www.totalradgjof.is.
