Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Átt þú foreldri í fangelsi?

Samskipti barna við foreldra sem eru í fangelsi
Aðstæður fanga
Upplýsingar um einstök fangelsi

Samskipti barna við foreldra sem eru í fangelsi
Sum börn alast upp við að foreldrar þeirra dveljast í fangelsi í lengri eða skemmri tíma. Við slíkar aðstæður er eðlilegt að upp vakni ýmsar spurningar t.d. varðandi það hvernig foreldrið býr, hvort hægt sé að heimsækja foreldri í fangelsi, skrifa því bréf eða hringja í það.

Börn geta komið í heimsóknir til foreldra sinna eða annarra aðstandenda. Stundum fara heimsóknir barna til foreldis sem er í fangavist fram utan fangelsis.  

Ef kona á ungbarn við upphaf afplánunar refsingar eða eignast barn í afplánun má heimila henni að hafa barnið hjá sér í fangelsinu fyrstu mánuði ævi þess og að jafnaði þar til það verður 18 mánaða að aldri.

Heimsóknir barna yngri en 18 ára til fanga skulu fara fram í fylgd forráðamanns eða annars aðstandanda. Heimilt er að leyfa barni sem náð hefur 18 ára aldri að heimsækja fanga án fylgdar liggi fyrir skriflegt samþykki forráðamanns eða annars aðstandanda, enda verði það ekki talið andstætt hagsmunum barnsins.

Börn geta skrifað foreldrum sínum bréf í fangelsi auk þess sem foreldrar geta skrifað börnum sínum bréf úr fangelsinu.

Foreldrar geta hringt í börnin sín úr fangelsum auk þess sem börn geta hringt í foreldra sína í fangelsi.

Aðstæður fanga
Fangar fá mat í fangelsinu og í sumum fangelsum er lítil búð þar sem þeir geta keypt ýmsar vörur.

Fangar fá yfirleitt sitt eigið herbergi í fangelsinu og mega taka með sér ýmsa muni eins og myndir, bækur og tölvu.

Í flestum fangelsum geta fangar stundað nám eða vinnu og fá þeir greitt fyrir það laun sem eru þó ekki há. Allir fangar fá greidda lágmarksdagpeninga á meðan þeir eru í fangelsi til að geta keypt nauðsynjavörur eins og tannkrem og tannbursta. Þó að fangar vinni eða stundi nám í fangelsi fá þeir einnig frítíma.

Í frítíma sínum geta fangar stundað ýmsar tómstundir. Fangar geta t.d. spilað spil, föndrað, horft á sjónvarp eða hlustað á útvarp. Föngum er heimilt að koma með tölvur í fangelsi en þeir mega þó ekki fara á Internetið. Í sumum fangelsum geta fangar einnig stundað íþróttir.

Ef fangi hefur ekki brotið gegn reglum í fangelsinu og hefur hegðað sér vel getur hann sótt um dagsleyfi til að fara úr fangelsinu til að vera með fjölskyldu sinni eða vinum. Fangi getur einnig sótt um skammtímaleyfi til að vera viðstaddur fæðingu, skírn eða fermingu barns síns.

Ef fangar verða veikir í fangelsi fá þeir læknishjálp í fangelsinu. Einnig er starfandi prestur sem fer í fangelsin og ræðir við fangana.

Upplýsingar um einstök fangelsi
Á Íslandi eru starfrækt fimm fangelsi; Hegningarhúsið í Reykjavík, Fangelsið á Kópavogsbraut í Kópavogi, Fangelsið á Litla-Hrauni og Fangelsið á Kvíabryggju.

Hegningarhúsið í Reykjavík
Flestir fangar dveljast aðeins í skamman tíma í Hegningarhúsinu. Annaðhvort afplána fangar mjög stutta dóma í Hegningarhúsinu eða eru sendir úr Hegningarhúsinu í önnur fangelsi.

  • Símtöl: Fangar geta keypt sér símakort og hringt úr fangelsinu. Þá mega fangar taka við þremur símtölum á viku.
  • Heimsóknir: Fangi má fá a.m.k. eina heimsókn í viku í tvær klst. í senn. Heimsóknin fer fram í sérstöku heimsóknarherbergi.
  • Vinna: Engin föst vinna er í Hegningarhúsinu. Einn fangi vinnur þó við að sjá um matarbakka og kaffiaðstöðu og annar fangi vinnur við þrif. Stundum falla til ýmis störf sem fangar geta unnið, eins og að mála, slá gras o.fl.
  • Útivera og tómstundir: Fangar eiga rétt á útiveru og að iðka tómstundastörf, líkamsrækt og íþróttir í frítíma sínum í a.m.k. eina og hálfa klukkustund daglega eftir því sem aðstæður í fangelsi leyfa. Nokkuð stór útivistargarður er við fangelsið sem er mikið notaður. Útivistartími er daglega frá kl. 9:30–10:00 og 16:00–16:30. Útivistartíminn er þó yfirleitt lengri, sérstaklega ef veðrið er gott.

Fangelsið á Kópavogsbraut í Kópavogi
Bæði konur og karlar geta dvalist í fangelsinu í Kópavogi. Konur sem eiga börn yngri en 18 mánaða geta sótt um leyfi til hafa barnið hjá sér í fangelsinu.

  • Símtöl: Kortasími er til staðar fyrir fanga og hafa þeir aðgang að honum til úthringinga utan vinnutíma á daginn fram til kl. 21:00 á kvöldin, þ.e. 8:30–9:00, 11:30–12:30 og 16:00–21:00. Um helgar og á helgidögum er síminn opinn frá kl. 9:00–21:00. Símakort fást keypt í fangelsinu. Fangi má taka við þremur símtölum (innhringing) í viku.
  • Heimsóknir: Fangi má fá a.m.k. eina heimsókn í viku í tvær klst. í senn. Heimsóknin fer fram í sérstöku heimsóknarherbergi.
  • Vinna: Nokkuð góð vinnuaðstaða er í kjallara fangelsisins þar sem fangar vinna ýmis störf og sér verkstjóri um að afla verkefna hjá fyrirtækjum og stofnunum. Vinnan getur m.a. falist í samsetningu eða pökkun á vöru. Þá er einnig rekið þvottahús í fangelsinu.
  • Útivera og tómstundir: Fangar eiga rétt á útiveru og að iðka tómstundastörf, líkamsrækt og íþróttir í frítíma sínum í a.m.k. eina og hálfa klukkustund daglega eftir því sem aðstæður í fangelsi leyfa. Útivistartíma er skipt í tvennt fyrir og eftir hádegi. Útivistartíminn er þó yfirleitt lengri, sérstaklega ef veðrið er gott.

Fangelsið Litla-Hraun
Á Litla-Hrauni er bæði almennt fangelsi og einangrunardeild sem er einnig notuð undir gæsluvarðhald.

  • Símtöl: Fangar geta keypt sér símakort og hringt úr fangelsinu. Símatímar fanga til að hringja úr fangelsinu eru um helgar frá kl. 10:00–kl. 21:30 og á virkum dögum frá kl. 11:30–12:30 og frá 15:00–21:30 (nema á innhringitímum). Hægt er að hringja í fanga á þriðjudögum, fimmtudögum og laugardögum frá kl. 18:00–21:30.
  • Heimsóknir: Fangi má fá a.m.k. eina heimsókn í viku. Heimsóknin fer fram í sérstöku heimsóknarherbergi.
  • Vinna: Hægt er að stunda ýmsa vinnu að Litla-Hrauni. Sem dæmi má nefna hellusteypu, vörubrettasmíði, þrif, bílnúmera- og skiltagerð. Fangar geta einnig stundað nám að Litla-Hrauni.
  • Útivera og tómstundir: Fangar eiga rétt á útiveru og að iðka tómstundastörf, líkamsrækt og íþróttir í frítíma sínum í a.m.k. eina og hálfa klukkustund daglega eftir því sem aðstæður í fangelsi leyfa. Útivistartíminn er þó yfirleitt lengri, sérstaklega ef það er gott veður. Ýmis afþreyingaraðstaða er í fangelsinu, eins og lítið íþróttahús, bókasafn, fönduraðstaða og biljarðborð. Lóð fangelsisins er nokkuð stór en þar eru m.a. göngubraut, fótboltavöllur og körfuboltaaðstaða.

Fangelsið á Kvíabryggju
Fangelsið að Kvíabryggju er sérstakt að því leyti að það er opið, þar eru ekki rimlar fyrir gluggum og fangelsið er ekki öðruvísi girt en venjuleg sveitabýli.

  • Símatöl: Kortasími er fyrir fanga í fangelsinu og hafa þeir nokkuð frjálsan aðgang til úthringinga. Innhringingum til fanga er svarað á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum frá kl.19:00–21:00.
  • Heimsóknir: Heimsóknir eru leyfðar einu sinni í viku og fara þær fram í sérstökum heimsóknarherbergjum.
  • Vinna: Fangar geta unnið ýmis störf og tengjast flest störfin sjó. Vinnan getur t.d. falist í því að fella net, gera við fiskikör og beita línu.
  • Útivera og tómstundir: Fangar eiga rétt á útiveru og að iðka tómstundastörf, líkamsrækt og íþróttir í frítíma sínum í a.m.k. eina og hálfa klukkustund daglega eftir því sem aðstæður í fangelsinu leyfa. Á Kvíabryggju er föngum leyfilegt að nýta frítíma sinn til útivistar á svæði jarðarinnar á meðan bjart er úti. Á jörðinni er m.a. golfvöllur þannig að fangarnir geta spilað golf.

Fangelsið á Akureyri
Fangar í fangelsinu á Akureyri dvelja þar yfirleitt aðeins í stuttan tíma nema þeir óski þess sérstaklega að afplána refsingu sína þar. Til stendur að endurbæta fangelsið.

  • Símatöl: Kortasími er fyrir fanga í fangelsinu og hafa þeir nokkuð frjálsan aðgang til úthringinga og til að svara símtölum.
  • Heimsóknir: Heimsóknir eru leyfðar einu sinni í viku og fara þær fram í fangaklefa viðkomandi fanga.
  • Vinna: Hvorki er aðstaða til vinnu né náms í fangelsinu á Akureyri.
  • Útivera og tómstundir: Fangar eiga rétt á útiveru og að iðka tómstundastörf, líkamsrækt og íþróttir í frítíma sínum í a.m.k. eina og hálfa klukkustund á dag eftir því sem aðstæður í fangelsinu leyfa. Við fangahúsið er garður þar sem fangarnir hafa aðstöðu til útiveru og boltaleikja.






 

 
   
 
 
 

 



Mynd af unglingum við lærdóm

Umboðsmaður barna...

... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
 
... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
 
... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
 
... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra