Börn víða um heim

Ísland er eitt af ríkustu ríkjum heimsins. Þó að auðvitað séu hér á landi börn sem búa við erfiðar aðstæður, eru veik og líður ekki vel er mikilvægt að hafa í huga að í flestum löndum heimsins eru börn að glíma við vandamál sem við þekkjum lítið eða ekkert.
Stríð, hættulegir sjúkdómar, hungur og erfið vinna er daglegt brauð hjá mörgum börnum og unglingum í fátækari ríkjum heims. Margir geta ekki gengið í skóla og mörg börn og unglingar hafa misst foreldra sína vegna átaka, hungurs eða sjúkdóma og sum börn eiga jafnvel ekkert heimili.
Þrátt fyrir neyðina geta þessi fátæku börn kennt okkur margt enda virðist alltaf stutt í brosið hjá þeim.
Við getum hjálpað þessum krökkum með ýmsu móti. Hægt er að standa fyrir skemmtun, halda tombólu eða safna áheitum og gefa svo ágóðann til hjálparstofnana. Sælla er að gefa en þiggja.
Sinn er siður í landi hverju og það er skemmtilegt og fróðlegt að heimsækja önnur lönd og kynnast menningu annarra þjóða. Það kemur mörgum á óvart hve mikið við eigum sameiginlegt með öðrum þjóðum hinum megin á hnettinum.
Börn og unglingar verða fyrir áhrifum af umhverfinu, fjölskyldunni og fólkinu í kring en öll eru þau jú, hvar sem þau búa, að fást við sama verkefnið: Hver er ég og hvernig manneskja vil ég verða?

Hvernig getur þú hjálpað þeim?
Ýmis félög og samtök sinna hjálparstarfi í útlöndum.

