Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    Teiknimynd af krökkum

    Hver er umboðsmaður barna?

    Umboðsmaður barna heitir Margrét María Sigurðardóttir. 

    Hún er lögfræðingur. 

    Ef þú vilt senda Margréti póst er netfangið ub@barn.is.

    Á skrifstofunni vinna líka þrír aðrir starfsmenn; Auður, Elísabet og Eðvald.







    Mynd af krökkum

    Umboðsmaður barna...

    ... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
     
    ... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
     
    ... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
     
    ... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra