Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    Teiknimynd af krökkum

    Hvað gerir umboðsmaður barna?

    Börn og unglingar yngri en 18 ára eiga fjölmörg réttindi - sín eigin réttindi - en þið verðið samt að muna að þið hafið einnig ákveðnum skyldum að gegna.  Því meiri réttindi - því meiri skyldur.

    Þegar 18 ára aldrinum er náð teljist þið loks fullgildir þjóðfélagsþegnar og fáið að kjósa karla og konur til þess að sitja í sveitarstjórnum og á Alþingi. 

    Þangað til er umboðsmanni barna ætlað að kynna réttindi ykkar og minna á þau þannig að ekki gleymist að taka tillit til þeirra.  Umboðsmaður fylgist með því að þeir sem vinna að málefnum ykkar sýni ykkur virðingu og beri hag ykkar fyrir brjósti.

    Umboðsmaður barna vinnur að því að bæta hag barna og unglinga almennt séð og gætir þess að tekið sé tillit til réttinda barna, þarfa og hagsmuna á öllum sviðum samfélagsins. 

    Umboðsmaður barna  má ekki skipta sér af málum einstakra barna.  Hins vegar leiðbeinir umboðsmaður, eða starfsfólk hans, öllum sem til skrifstofunnar leita um hvert hægt er að snúa sér til að fá aðstoð við að leysa sín mál.









    Mynd af krökkum

    Umboðsmaður barna...

    ... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
     
    ... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
     
    ... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
     
    ... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra