Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    Teiknimynd af krökkum

    Hafðu samband!

    Ef þú vilt segja hvað þér finnst og að hlustað sé á skoðanir þínar.

    Ef þú vilt koma með hugmynd eða tillögu sem gæti orðið til hagsbóta fyrir börn og unglinga.

    Ef þú ert í vandræðum og veist ekki um neinn sem getur hjálpað þér eða vini þínum.

    Ef þú vilt afla þér frekari upplýsinga um réttindi barna og unglinga.

    Sendu þá tölvupóst til umboðsmanns barna, hringdu, skrifaðu bréf eða komdu í heimsókn.

    Þú þarft ekki að spyrja neinn leyfis og það er alveg ókeypis.

    Umboðsmaður barna
    Laugavegi 13, 2. hæð
    101 Reykjavík

    Sími: 552-8999
    Bréfasími: 552-8966
    Frítt númer: 800-5999

    Netfang: ub@barn.is
    Veffang:
    www.barn.is


     









    Mynd af krökkum

    Umboðsmaður barna...

    ... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
     
    ... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
     
    ... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
     
    ... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra