Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Réttindi og skyldur barna í skólum

  • Öll börn á aldrinum 6 til 16 ára eiga að ganga í skóla. Þau eiga að:
    • bera ábyrgð á eigin námi og framkomu sinni með hliðsjón af aldri og þroska
    • hlýða kennurunum og öðru starfsfólki, 
    • fara eftir skólareglunum, 
    • vera tillitssöm við skólasystkini sín. 
  • Grunnskólinn er vinnustaður nemenda. Þar skal gætt að því að:
    • nemendur finni til öryggis og njóti hæfileika sinna
    • vinnuálag sé hæfilegt þannig að nemendur fái nægilega hvíld
    • námsumhverfi sé hvetjandi og nemendur njóti vinnufriðar
  • Nemendur eiga rétt á því að koma sjónarmiðum sínum á framfæri og taka skal tillit til sjónarmiða þeirra í skólastarfi eins og unnt er.
  • Ekki má víkja barni úr grunnskóla nema það fái kennslu annars staðar
  • Öll börn eiga að rétt á kennslu við sitt hæfi, óháð líkamlegu eða andlegu atgervi
  • Ef barn á erfitt með að læra af sérstökum ástæðum á það rétt á að fá aðstoð við námið
  • Ef móðurmál barns er annað en íslenska á það rétt á sérstakri íslenskukennslu í skólanum sínum.
  • Barn og foreldrar þess eiga rétt á upplýsingum um einkunnir barns og einnig að skoða próf sem búið er að gefa einkunn fyrir.
  • Sá sem hefur lokið grunnskólaprófi á rétt á að fara í framhaldsskóla.

 Nánari upplýsingar um réttindi og skyldur nemenda í grunnskólum.








 
 

Mynd af krökkum

Umboðsmaður barna...

... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
 
... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
 
... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
 
... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra