
Smásagnasamkeppni umboðsmanns barna og Ríkisútvarpsins
Árið 2000 efndu umboðsmaður barna og útvarpsþátturinn Vitinn til smásagnasamkeppni í tilefni af 10 ára afmæli Barnasáttmálans. Um það bil fjögurhundruð sögur bárust og valdi dómnefnd tuttugu sögur til verðlauna. Dómnefndin var skipuð þeim Andra Snæ Magnasyni rithöfundi, Þórunni Blöndal lektor við Kennaraháskóla Íslands, Sigríði Pétursdóttur umsjónarmanni Vitans og Kristínu Einarsdóttur kennara. Nokkrar verðlaunasögur voru lesnar upp í Vitanum og að auki fengu höfundar þeirra bókaverðlaun frá Máli og menningu og Vöku-Helgafelli auk viðurkenningarskjals frá umboðsmanni barna.
Verðlaunahafar voru þessir:
Kristján Eldjárn Hjörleifsson, Kamilla Kristín Bárðardóttir, Dagný Þorsteinsdóttir, Bergþór Viðarsson, Katrín Halldóra Sigurðardóttir, Stefán Pálsson, Dóra Hrund Gunnarsdóttir, Ólafur Marteinsson, Lovísa Jónsdóttir, Tinna Hallgrímsdóttir, Halldís Thoroddsen, Arnar Óskarsson, Sólveig María Thomasdóttir, Ingibjörg Guðný Friðriksdóttir, Íris Björk Jakobsdóttir, Hjalti Þorleifsson, Vilborg Egilsdóttir, Anna Margrét Hrólfsdóttir, Halldóra Auður Jónsdóttir og Anna Rós Erlingsdóttir.
Hér að neðan eru svo smásögurnar þeirra: