Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    Teiknimynd af krökkum

    Ábendingar

    "Mér finst að það eigi að spyrja fyrst börnin í landinu hvort það megi gera þetta og hitt eins og t.d. að byggja hús þarna eða ekki, eða kjósa um eitthvað sem krakkar hafa kannski líka áhuga á !!!!!! og mér finst að fatlaðir unglingar/krakkar eiga að fá jafn mikla mentun eins og aðrir krakkar/unglingar!!!!!"

    12 ára stúlka

    "Hæ. Ég var að hugsa er ekki til einhver staður sem að börn og unglingar geta komið sínum skoðunum á framfæri? Eins og fullorðna fólkið fær að kjósa. Það er kannski ekki rétt af krökkum við fermigar aldur að vilja fá kosningar rétt því að börn á þeim aldri hafa kannski ekki nógu/mis mikinn skilning á pólitískum málum. Það sem ég vil bara koma á framfæri er að börn eru líka fólk og mér finnst að öllu fólki ætti að sýna tillitsemi til að seiga frá því sem þau vilja eða hafa skoðun á. Börn ættu að fá einhvern stað til þess að hittast og tala um mál sem að skipta í alvörunni máli og það sem ÞEIM börnunum finnst skipta máli. Mér finnst eins og það sé ekki hlustað nógu mikið á okkur. Við erum nú verðandi fullorðnir. Hvað á að undirbúa okkur til þess að hafa skoðannir? Það halda bara sumir að þeir megi ekki hafa skoðanir á stjórnmálum eða þess háttar af því að þau eru börn !!!"

    12 ára stúlka

    "Okkur vinkonunum finnst barnagjald í strætó vera of hátt og að barnagjald ætti að gilda fyrir öll börn."

    12 ára stúlkur

    "Ég er tólf ára og fer svona að komast á þann aldur að svo margt fer að breytast. Ég hef tekið eftir því að það er svo oft sem við krakkarnir vinir mínir erum að gera ýmislegt en þau eru oft ekkert að láta foreldra sína vita. Um daginn hittust nokkrir af vinum mínum heima hjá einum stráknum og foreldrar hans voru einhverstaðar, ég veit ekki hvar, en þau voru allavega ekki heima. Ég veit ekki hvað þau voru að gera vegna þess að ég fékk ekki að fara. Ég hafði farið út að borða með bestu vinkonu minni og mömmu hennar þegar hún spurði hvort hún mætti fara og hitta krakkana þarna. Mamma hennar leyfði henni það ekki vegna þess að það voru engir foreldrar heima. Þegar ég var svo komin heim hittum við pabbi foreldra einnar stelpunnar sem var þarna hjá krökkunum og þau höfðu ekki haft hugmynd um að dóttir þeirra væri þarna í "foreldralausu partíi" heldur hafði hún sagt þeim að hún væri að fara að passa. Mér fannst það heldur kærulaust af foreldrunum að hringja ekki þangað sem hún sagðist vera að fara að passa eða eitthvað og "kanna aðstæður" eins og maður segir. Jæja, daginn eftir frétti ég allavega að besta vinkona mín hafði samt farið þarna þó mamma hennar hefði bannað henni það, ég veit ekki hvort mamma hennar hafi bara gefist upp á endanum og leyft henni að fara eða hvort hún hafi bara stolist. Mér finnst þetta svolítið erfitt því ég segi alltaf foreldrum mínum hvert ég er að fara og hvað að gera og hlýði því ef ég má það ekki. Það virðist bara sem svo að ég sé ein um það. Mér finnst þetta svo skrítið því krökkunum finnst þau svo frjáls og svo flott en það er ábyggilega ekki langt í að einhverjir af þessum krökkum fari að prófa að reykja og drekka og svoleiðis ef hópurinn prófar það allur því þau vilja ekki vera öðruvísi en allir aðrir. Ég held samt að það sé betra svona til lengri tíma að verða útilokaður frá hópnum heldur en að taka þátt í svona vitleysu. Maður verður að muna að það kemur alltaf tími eftir þennan og svo ekki sé talað um, vinur eftir þennan. "

    12 ára stúlka 

    "Hæ hæ við erum 2stelpum og viljum kvarta yfir heimanámi sem er of mikið sko í fyrra vorum við með annan kemmara sem er strangari og hún lét okkur fá miklu minna heimanám. Konan sem er núna lætur okkur fá MIKLU meira. t.d. 2 bls í skrift, 5 bls í stjörnubók, upprifjunarhefti í stærðfræði, stafsetningaræfingu, 4e rindi í erfiðu ljóði, lesa 12 blaðsíðna sögu og læra fyrir íslenskupróf, stærðfræðipróf, skriftarpróf, framsagnarpróf og bókmenntir. Svo lét hún okkur fá miða yfir það sem við áttum að læra og það var FULLT á honum sem hún hefur aldrei kennt okkur. Svo velur hún sér uppáhalds nemendur í bekknum(það er ekki bara gáfuðustu nemendurnir) heldur t.d. stelpa sem heitir sama nafni og hún, og hún þolir okkur ekki. kv 2 ó ánægðar."

    11 ára stúlkur