Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    Teiknimynd af krökkum

    Réttindi mín 0-7 ára

    Þetta eru réttindi þín. Það eru sömu réttindi og annarra barna og unglinga í öllum heiminum.  Lestu, lærðu og ræddu um þau í skólanum, í félögum sem þú ert í og í vinahópnum.

    Öll börn eru  
    mikilvæg
    og líka ég.

    Öll börn eiga rétt
    á sínu eigin nafni.

     
     

    Ég á rétt á
    að vera með
    bæði mömmu
    og pabba.

    Enginn má
    slá mig eða
    stríða mér.

    Ég á rétt á
    að mér líði vel.

    Ég á rétt á
    að fá hjálp
    þegar mér
    líður illa.

    Ég á rétt á
    að segja
    hvað mér
    finnst.

     

    Ég á rétt á
    að leika mér.

    Ég á rétt á
    að fá að læra
    ótal margt
    í leikskólanum
    og í skólanum.

    Þú og ég
    og öll önnur
    börn eiga rétt á
    að fá að lifa
    við öryggi.

    Þetta eru Réttindi þín, bók um Samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna, sem í daglegu tali er nefndur Barnasáttmálann. Hann á við um öll börn og alla unglinga í heiminum.

    Barnasáttmálinn er um öll þau réttindi sem börn og unglingar eiga. Öll börn í heiminum eru jafnmikils virði og eiga sömu réttindi.

    Sáttmáli er samkomulag milli ríkja. Með því að skrifa undir sáttmálann, lofa ríkin að gera það sem í sáttmálanum stendur. Hvert atriði sáttmálans er kallað grein.

    Flest ríki heimsins hafa skrifað undir Barnasáttmálann. Íslendingar fullgiltu hann 28. október árið 1992.

    Barnasáttmálinn er í 54 greinum og við höfum valið nokkrar þeirra til að kynna í þessari bók.

    Það er mikilvægt að þú þekkir réttindi þín og að þú hjálpir til við að fræða öll börn um Barnasáttmálann.

    Þegar þú ert búin(n) að lesa bókina skaltu athuga hvernig málum er háttað í skólanum þínum, heima hjá þér og í bænum þínum eða sveitinni til þess að þú getir sjálf(ur) haft áhrif á þá sem stjórna.

     

    © BARNkonventionsgruppen 1992 © Myndir: Andersson & Andersson Útlit: Andersson & Andersson, Gautaborg
    Myndir: Gert Andersson © 1994 Íslensk þýðing: Vilborg Dagbjartsdóttir Ritstjórn íslensku útgáfunnar: Árný Elíasdóttir og Heimir Pálsson Öll réttindi áskilin
    1. útgáfa 1994, 2. prentun 1994
    Námsgagnastofnun og Dóms- og kirkjumálaráðuneytið Umbrot og myndvinnsla: PRENTHÖNNUN HF
    Prentun: Prentsmiðjan Oddi hf. Prentað á endurunninn og visthæfan pappír.









    Mynd af krökkum

    Umboðsmaður barna...

    ... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
     
    ... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
     
    ... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
     
    ... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra