Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    Teiknimynd af krökkum

     

     

     
             


        

     

     

     

     

    Aðstoð í boði

    Stundum er lífið erfitt. Þekkir þú eitthvað af þessu af eigin raun?

    • Ég á engan góðan vin.
    • Mér gengur illa að læra.
    • Mamma og pabbi rífast oft.
    • Ég er með verki í líkamanum.
    • Mér líður ekki vel heima hjá mér.
    • Ég hef áhyggjur af fjölskyldu minni.
    • Það hlustar enginn á það sem ég hef að segja.
    • Ég get ekki eða má ekki gera það sem vinir mínir gera.
    • Einhver hefur beitt mig ofbeldi og ég þori ekki að segja frá því.
    • Það er eins og ég geri aldrei neitt rétt.  Það er alltaf verið að skamma mig.
    • Einhver sem mér þykir vænt um er dáinn, lenti í slysi eða er orðinn mjög veikur.

    Stundum líður manni bara illa. Oft veit maður af hverju það er en stundum ekki. Það er mikilvægt að fá skýringar á því sem maður skilur ekki og stuðning til að manni líði betur. Með því að tala um hlutina við einhvern fullorðinn sem maður treystir líður manni oftast betur. 

    Yfirleitt finnst fólki gott að ræða málin við einhvern sem það þekkir vel eins og t.d. einhvern úr fjölskyldunni. En stundum getur líka verið gott að tala við einhvern utanaðkomandi. 

    Umboðsmaður barna vill sérstaklega benda á að börn og unglingar eiga alltaf að geta leitað til þessara aðila til að fá upplýsingar, ráðgjöf og aðstoð:

    • Grunnskólanemar geta leitað til umsjónarkennarans síns.  Umsjónarkennarar eiga að aðstoða nemendur við að leysa úr persónulegum málum sem og námslegum. Þeir geta líka vísað nemendum á fagfólk innan skólans eins og t.d. hjúkrunarfræðinginn eða námsráðgjafann. Nemendur geta að sjálfsögðu líka leitað sjálfir til hjúkrunarfræðingsins, námsráðgjafans. Sumir skólar eru líka með skólafélagsráðgjafa.
    • Starfsfólk félagsmiðstöðvanna er bundið trúnaði og mörgum finnst mjög gott að ræða málið við það.   
    • Margir leita til presta til að ræða persónuleg mál, enda eru prestar bundnir trúnaði. Jafnvel þótt þú þekkir prestinn þinn ekki neitt getur þú alltaf leitað í kirkjuna.
    • Mörg sveitarfélög bjóða íbúum sínum upp á fjölskylduráðgjöf. Þangað geta börn leitað til að ræða og fá lausn á vandamálum sínum. Hér er listi yfir öll sveitarfélög landsins.  Með því að smella á sveitarfélagið þitt kemst þú inn á heimasíðu þess. Hafðu samband við sveitarfélagið þitt til að fá upplýsingar um fjölskylduþjónustuna.  
    • 1717 er hjálparsími Rauða krossins. Hann er opinn allan sólarhringinn og það kostar ekkert að hringja í hann. Ef þér finnst lífið vera tilgangslaust skaltu ekki hika við að hringja í hjálparsímann.
    • Tótalráðgjöfin býður upp á heildræna ráðgjöf fyrir börn og unglinga. Heimasíðan er www.totalradgjof.is.  
    • Samtökin Barnaheill bjóða upp á netráðgjöfina www.heyrumst.is.







     


    Mynd af krökkum

    Umboðsmaður barna...

    ... vinnur að hagsmunamálum barna almennt séð en ekki að málum einstakra barna
     
    ... leiðbeinir og gefur ráð hvert börn geta leitað til að ná fram rétti sínum
     
    ... kemur með ábendingar og tillögur til úrbóta sem snerta hag barna á öllum sviðum samfélagsins
     
    ... vill fá að vita hvað börn eru að hugsa og hvað þeim finnst um ýmsa hluti sem snerta þau og nánasta umhverfi þeirra