Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




     Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni  

    Hvers konar áhrif hafa kvikmyndir, sjónvarpsþættir og tónlistarmyndbönd á ungt fólk?
    Spurt 2005

    „Bara góð áhrif.”
    11 ára stúlka

    „Þau hlusta eða horfa á barnamyndir eða barnalög.”
    9 ára stúlka

    „Þau eru minna úti og hugsa að allir séu svona fullkomnir en hugsa að þeir séu ljótir út af því þeir vilja vera svona. Þau eru alltaf með höfuðverk og eru ekki mjög þrótt miklir og geta kannski bara hlaupið í fimm mínútur en hinir allan daginn.”
    11 ára stúlka

    „Þau hafa þau áhrif að krakkar verða kannski klámsjúk eða eitthvað þannig.”
    12 ára stúlka

    „Ekki mikil eða t.d. þungarokk getur gert mann þunglyndan!”
    12 ára stúlka

    „Ég er aðeins tíu en sumir strákar í 5.bekk horfa oft á viku á kvikmyndir og sjónvarpsþætti bannaða innan 18. Þeim er alveg sama. Einn strákurinn blótar í hverri setningu. Svarið mitt er þannig ILLA.”
    10 ára stúlka

    „Auðvitað ekki neitt, þetta er bara skemmtiefni sem að enginn nema andlega veikt eða óstöðugt fólk tekur alvarlega t.d. að skjóta einhvern því það fannst það svo cool í bíómyndinni þarna á laugardaginn. Ég nýlega skrifaði
    pistil í laufblaðið (heimablað unglinga) um þetta málefni og þar kom ég með ýmis dæmi eins og pacman, raging bull, godfather. Allt eru þetta tískufyrirbæri sinna tíma en ekki sé ég mömmu mína hlaupandi um étandi punkta og að forðast drauga eða pabba boxandi eða hvað þá afa minn setja hest í rúmið hjá mér!”
    13 ára piltur

    „Illa ef þau horfa lengi. Ég er ung og tegar ég horfi lengi á svona þá meiði ég mig í augunum”
    8 ára stúlka