Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




       Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni  

    Hvernig geta börn og unglingar haft meiri áhrif á málefni sem snerta þau?
    Er leitað ráða hjá börnum og unglingum?  
    Er tekið mark á tillögum / kvörtunum barna og unglinga?
     Spurt 2004
     
    „Með því að skilja þau. Öll svona málefni eru svo flókin það er orðað þau á svo óskiljanlegan hátt og það er aldrei leitað ráða hjá ugnlingum eða börnum. Því þau eru haldin svo vitlaus og aldrei tekið mark á kvörtunum eða tillögum þeirra.”
    12 ára stúlka

    „Út af því að það eru öðruvísi tilfinngar og þau eru kannski ekki búin að kynnast öllu og það snertir þau á viðkvæman hátt.”
    11 ára stúlka

    „Náttúrulega með því að koma orðum sínum og málum sínum á framfæri. fullorðnir þurfa bara að hlusta og komast að réttlæti.”
    16 ára stúlka

    „Nei það er ekki leitað ráða hjá okkur en áa það er stundum tekið mark á tillögum okkar og já kvartana en það fer bara eftir því hvernig kvörtunin er.”
    14 ára stúlka

    „Mér finnst að börn og unglingar geti snert málefni sem þau snertir ef þau fá leyfi og helst væri þörf á að þau segðu sína skoðun. Mörg börn vilja ekki segja sína hlið og sinn vilja ef þau mega það bara, þora því kannski ekki en ef það er skylda fyrir þau að segja það þá segja þau hvað þau vilja. Það þarf að hafa einhvern aga og segja þeim að gera eitthvað í málunum ef þau eru vitlaus. oft er ekki tekið mark á unglingum og börnum en það er aðeins vegna þess að mikið af börnum og unglingum hafa rangt fyrir sér og ljúga mikið. Þess vegna þarf að tala við börn lengi og vel til að vera viss um hvað er satt og hvað ekki. Tillögur og kvartanir barna og unglinga er stundum tekið mark á en mætti taka meira á þeim.”
    16 ára stúlka