Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni
Finnst þér stjórnmálamenn taka nógu mikið tillit til barna og unglinga á Íslandi?
Hvað eiga stjórnmálamenn að gera fyrir börn og unglinga?
Spurt 2004
„Mér finnst sumir taka það tillit sem þar að mér finnst þurfa en ekki nærri því það margir að hægt er að gera eithvað!!!!
„Jájá, þau geta ekkert gert betur held ég. Þetta er svosem ágætt. Hef enga skoðun á þeim.”
„Það er ekki nóg gert fyrir börn sem verða t.d. fyrir kynferðisofbeldi og það ætti að tryggja öryggi gegn þessu á einhvern hátt betur!!!!!”
„Mér finnst þetta bara fínt eins og þetta er og mig langar ekki til aðbreyta.”
„Stjórnmálamenn hugsa ekkert um börn bara um fullorðna því þeir geta kosið þá. Þetta er hneyksli.”
„Stjórnmálamenn hjálpa börnum að læra það sem við þekkjum ekki, það sem gerist á jörðinni.”
„Leyfa skólum sem eru með fá leiktæki fá fleiri leiktæki og leyfa krökkum
yngri en 18 ára fá frítt í strætó og sund.”
„Leyfa börnum að vera í öllum tölvuleikjum á öllum aldri.”
„Láta alla skóla fá meiri leiktæki og hafa frítt í strætó fyrir 18 ára og yngri .Búa til klúbb handa krökkum 18 ára og yngri.
„Nei mér finnst þeir ekki taka nóg tilit til barnanna. Þau ættu að laga allavegi og lækka flugfargjald.”
„Nei, eiginlega ekki.”
„Nei, það þarf að gera betur við vegi á Vestfjörðum.”
„Nei þeir eru alltaf að hugsa um sjálfa sig. Þeir eiga frekar að leggja meira í skóla á Íslandi.”
„Já”
„Nei og þeir ættu líka að stytta skólann.”
„Mér finnst að þeir geta alveg haldið tónleika fyrir börn og unglinga, .hafa svona danssýningu til styrktar einhvers! :).”
„Mér finnst að búðarmenn ættu að taka meiri tillit til barna. Davíð Oddson ætti að tala stundum um eitthvað annað. Já mér finnst stjórnmálamenn taka nógu mikið tillit til barna og unglinga á Íslandi.”
„Mér finnst stjórnmálamenn ekki taka tilliti til barna og unglinga og sumt fólk tekur ekki tillit til barna og unglinga. Fólk sem er í búðum og kennarar taka flest tillit til barna og unglinga og sumt fólk hugsar bara um sjálfan sig.”
„Mér finnst að stjórnmálamenn taki ekki nóg tillit til barna en samt er mér alveg sama um þessa stjórmálamenn.”
„Mér finnst að stjórnmálamenn gætu tekið meira tillit til barna en annars finnst mér þetta gott land.”
„Mér finnst að þeir hugsi bara um það sem þeim finnst mikilvægt og hugsi ekki um að það eiga margir bágt í þessum heimi og líður ekki eins vel og þeim. Og bara fullorðið fólk almennt. Ég á samt ekkert bágt.”
„Ég hef bara ekkert pælt í því mikið og síðan er ég bara ekki viss.”
„Nei, vegna þess að við fáum svo rosalega stutt sumarfrí og krakkar eins og við eigum að njóta lífsins.”
„Ég veit það ekki alveg, en það mætti hafa betri þjónustu í skólum fyrir fatlaða krakka og þá sem þurfa meiri hjálp og svo að þau geta verið á svipuð róli og jafnaldrar þeirra!”
„Nei það finnst mér ekki. Það er alltaf bara endalaust verið að tala um þjónustu fyrir aldraða og allt svoleiðis. Auðvitað er það fínt og á fullan rétt á sér en það má líka hugsa aðeins um börnin. Er til dæmis æska landsins ekki mikilvægari en einhverjir flugvellir eða allskonar svoleiðis. Það er nógu mikið gert fyrir byggingar landisins og fleira. En það vantar fleira fyrir börnin. Á hvejrum degi er níðst á börnum bæði í skólum og annars staðar. Með einelti, slagsmálum, nauðgunum og fleiru. Alltaf er verið að reyna að bæta eitthvað úr því en það verður að gera meira. Munið að börn landsins eru framtíð landsins!”
„Mér finnst þeir gera það. Ég dýrka stjórmálamenn. Mér finnst þeir eiga að auka foreldrastjórnun yfir börnum sínum. Mér finnst að börn eigi ekki að verða sjálfráða fyrr en um þrítugt.”
„Stjórnmálamenn á að gera eitthvað um unglinga sem reykja, kanski setja lög sem banna 18 ára og yngri til að reykja.”
„Mér finnst þeir ekki taka nógu mikið tilit til barna og unglinga Íslandi. En þeir geta t.d. talað við unglinga og bæta skólaaðstöðu og meira öryggi í skólanum.”
„Mér finnst stjórnmála menn persónulega séð ekki vera að gera nógu mikið fyrir börn á Íslandi. Þeir uppfylla bara þarfir fullorðinna, en framfylgja ekki kröfum unglina og barna. Þeir gera t.d. ekkert gott fyrir okkur krakkana en eru hvað eftir annaða að hækka launin hjá sér (stjórnmálamönnunum), hækka eftirlaunin og fleira! T.d. get ég, sem unglingur, ekki fengið neitt gott starf á Íslandi þegar ég er 14 ára. Besta sem ég get fengið er UNGLINGAVINNAN!!!!! Það er hræðilegt kaup þar á ferð eða 200-250 kall á tímann og mér finnst það allt of lágt! Mér finnst að stjórnmálamennirnir myndu hækka laun barna í unglingavinnunni á Íslandi. Við erum nú einu sinni á vegum Reykjarvíkurboragar!! Fyrst þeir geta hækkað launin SÍN hvað eftir annað af hverju geta þeir ekki hækkað LAUNIN okkar!!!? Mér finnst stjórnmálamenn nokkurn veginnn, ef ég má kalla þá: FáViTaR!! Þeir taka ekki neitt tillit til okkar unglingana! Hugsa bara um sig!”
„Nei mér finnst það ekki það er frekað meira einbeitt sér að sköttum fólks en mér finnst að stjórnamálamenn eigi að halda fund með unglingum og börnum til að bæta ásstandið.”
„Nei mér finnst þér ekki taka nógu mikið tillit til ungra og klárra krakka sem að hafa margt rétt fyrir sér. En ef ég gæti stjórnað eitthverju þarna væri ég búin að reka MARGA stjórnamálamenn. Sumir þarna eru bara vitleysingar.”
„Mér finnst allt í lagi að börn meigi ekki kjósa því það væri bara rugl.”
„Nei ekki nógu mikið! Þeir eiga til dæmis að hlusta á það eða taka við bréfum eða eitthvað svoleiðis um hugmyndir það sem börn vilji að gerist í samfélaginu eins og eitthvað skemmtilegra í skólanum, að börn mega vera lengur úti, eða eitthvað annað. Því það er svo sjaldan hlustað á börn!”
„Já mér finnst þeir taka mjög mikið tillit til barna og ungling.”
„Nei það finnst mér ekki. Þeir eiga að sýna meiri áhuga á unglingum en ekki segja þetta eru bara unglingar og búið mál.”
„Ég fylgist ekkert svakalega mikið með stjórnmálum, og mér finnst ekkert mikið vanta, ekkert svona sérstakt. En mér finnst þetta mjög sniðug síða, en mig langar samt allveg að kynna mér stjórnmál.”
„Mér finnst að þeir ættu að passa að krakkarnir ættu ekki að vera svona mikið lagt í einelti og stríða.”
„Nei mér finnst það ekki. Það er aldrei hlustað á okkur börnin. Það á að hlusta á börn sem eru með skoðanit, ekki þykjast vera eitthvað hærri en við.”
„Mér finnst ekki nógu mikið gert fyrir börn og unglinga. Það er alltaf vera að stytta öll frí í skólanum og mér finnst það mjög ósanngjarnt því maður á að fá langt sumarfrí.”
„Eitt af því sem ætti að veita meiri athygli er menntakerfið. Mikið af því kerfi er úrelt, og það ætti helst að fara í miklar stefnubreytingar í sambandi við menntakerfið.”
„Nei, mér finnst að þeir eigi að stytta skólaárið til dæmis og margt sem má breyta, lengja útivistartímann aðeins líka.”
„Nei mér finnst það algjört hneyksli. Þeir eiga að gera meira fyrir börn og unglinga”
„Það á að gera meira til að stoppa fordóma.”
„Nei mér finnst að það ætti að taka meira tillit til þeirra. Það eru alls konar mál sem varða kannski ekki bara stjórnmálamenn en oft er komið fram við unglinga eins og við séum eitthvað verri en annað fólk.”
„Nei mér finnst þeir ekki taka mikið tillit til barna og unglinga. Ætti að gera meira fyrir unglinga og ódýrara því ekki eigum við mikinnn pening. T.d. var strætó leiðinni breytt fyrir fólk í háskólanum meðan við þurfum að labba lengra í strætó. Þau eru mörg komin með bílpróf.”
„Nei ekki nógu mikið. Þeir lengdu skólann því að þeir þurftu að vera með hann jafn langan og einhver önnur lönd. Þeir voru ekkert að hugsa út í það að börnin nenna ekki að vera í námsfangelsinu næstum því allt árið. Það sem þeir eiga að gera er að veita þeim meira frelsi.”
„Það sýnir tillit að hætta að kenna dönsku í skólanum og gefa meiri frelsi il menntunarleiða.”
„Mér finnst stjórnmálamenn oftast taka tillit til barna/unglinga á Íslandi. Þó kemur það fyrir að börnin gleymast í umræðunum á Alþingi og þess vegna finnst mér sniðugt að hafa svona embætti eins og Umboðsmaður barna er. Þannig stuðlar hann að því að börnin gleymist ekki í umræðum um stjórnmál á Íslandi.”
„Ó nei, þeir hugsa bara um peninga. Þetta er bara KJÓSIÐ MIG, KJÓSIÐ MIG. Þeir ættu nú að gera eitthvað í okkar garð. Skólarnir eru allir gerðir af okkar penongum. Þeir ættu nú að setja eitthvað í sjóðinn. Svo ekki sé minnst á spítalana!!!.”
„Pesónulega fannst mér fyrrverandi borgarstjóri ekki taka nógu mikið mark á
bréfum frá krökkum um að byggja fleiri tómstundarleikvelli; samt veit égað borgin er í skuldum og tek mark á því :o(.”
„Mér finnst að það ætti að stytta skólaárið, og svo líka setja upp tívolí sem er allaveganna opið allt sumarið, ekki bara svona tívolí sem að kemur í einn mánuð..! :).”
„Stytta skóla árið og taka meira tilit til hreyfingar og útivistar t.d. meiri íþrótir á skólatíma og hvetja meira til útivistar eftir skóla.”
„Mér finnst fullorðnir yfir höfuð ekki taka tillit til barna.”
„Mér finnst að stjórnmálamenn setji börn ekki í fyrsta sæti samanber styttingu menntaskóla um eitt ár og svo framvegis en ég held að stjórnmálamenn geti bætt við tómstundahúsum og félögum.”
„Ég er í gagnfræðiskóla og finnst mér mjög skrítið af hverju alltaf er verið að lengja skólaárið...af hverju meigum við ekki hafa gott langt sumarfrí ýmist til að vinna eða bara hafa gaman. Af hverju erum við látin anga inni í skólastofum á vorin þegar sólin er úti og öllum langar út í óða veðrið?? Mér finnst að þessa lengingu eigi að draga til baka!”
„Nei það finnst mér ekki , eins og t.d strætó verðið fyrir unglinga er alveg fáránlega hátt, 220 kr. finnst mér allt of mikið fyrir okkar kynslóð.Þeir meiga allveg gera einhvað í því!!!!”
„Nei það finnst mer ekki.Margir hugsa aðeins um peninga en ekki börn. T.d eru barnaníðingar að fá kannski 2 mánuði á skilorði. Það á herða refsingar svo börn geti verið örugg úti á götunum. Og að stytta skólaárið i framhaldsdkóla-ekki rétt!!”
„Mér finnst að þeir þurfi að taka meira tillit til barna og unglinga. Ég held t.d að ef að það er einhver flokkur sem leggur sig fram í að gera eitthvað fyrir börn, þá sé hann eiginlega að tryggja sér atkvæði seinna meir. Það getur auðvitað verið bæði gott og vont en ég held að það skaði ekkert að gera meira fyrir börn og undlinga (",).”
„Nei, þeir taka ekki nógu mikið tillit til unglinga (kannski barna en ekki
unglinga). Þeir eru alltaf að setja einhver ný lög og/eða reglur sem eru hentugar þeim og fullorðnum en ekkert nema slæmt fyrir okkur. Eins og t.d.
skólaárið. Hvað voru þeir að hugsa. Þetta var t.d. bara gert fyrir fullorðna, til að
börnin þyrftu ekki að vera heima eins lengi af því að fullorðnir eru/VORU í vinnunni á þeim tíma. Ég meina, reddið bara einhverjum hálfgerðum leikskóla fyrir 6-ára krakkana.”
„Sko mér finnst þeir taka frekar mikið tillit til barna og unglinga á Íslandi og ég held eg hafi bara yfir engu að kvarta.”
„Nei mér finnst þeir ekki vera að standa sig. Mér finnst þeir ættu að gefa félagsmiðstöðum aukið fjár og auka hluti sem unglingar geta gert til afþreyingar.”
„Nei mér finnst stjónmálamenn ekki taka tillit til barna yngri en 18 ára. Mér finnst stjórnmálamenn eigi að leyfa börnum 10 ára og yngri að kjósa.”
„Nei, þeir eru ekkert að hugsa um krakka. Annars væru ekki öll lög og
allt sem tengjast okkur (sérstaklega unglingum) svona asnaleg. Eru það ekki líka þeir sem skipuleggja skólann. Við erum að tala um það að þessir menn
eru með lengra frí en krakkar sem að eru í 1.bekk. Það er náttúrulega ekki rökrétt. Það er greinilega svo langt síðan að þetta fólk var ungt að það man ekki hvað það er flókið og hvað það er íraun og veru erfitt að vera í skóla!!!”
„Mér finnst stjórnmálamenn ekki taka nógu mikið tillit til barna. Mér finnst að þetta sé það sem stjórnmálamenn eiga að gera fyir börn og unglinga: Lækka verð hjá leikskólum
ríkissins, búa til nokkrar fræðandi síður fyrir börn og unglinga um alls konar efni, svo finnst mér að það séu allt of mikið af tölvuleikjum sem eru of ofbeldisfullir og margir foreldrar taka ekkert tillit til aldurstakmarka.”
„Mér finnst stjórnmálamenn oft ekki hlusta á börn eins og svo margir fullorðnir gera. Stjórnmálamenn reyna hins vegar að vera kurteisir því oftast er fullorðið fólk í kring og vilja þeir ekki skerða ímynd sína hjá þeim. Það eru samt ekki stjórnmálamenn sem þarf að hafa áhyggjur af heldur allt fólk yfir höfuð. Stjórnmálamenn eiga að sýna fólki að það er ekki endilega aldur fólks sem skiptir máli í svo ýmsum málum heldur hugurinn. Ungt fólk getur verið með mjög þroskaðan huga og þarf ekki að tala við alla eins og þeir séu
heiladauðir en samt búast við að börn viti endilega allt og þess vegna þarf fólk að kynna sér hverja og eina manneskju. Stjórnamálamenn ættu einnig að reyna að gera nám barna samrýmdara eftir landshlutum því mikill munur er á því hvað börn eru að læra í Reykjavík og úti á landi. Þetta á við grunnskóla og framhaldskóla landsins. Krakkar sem eru í sömu áföngum í framhaldsskóla geta verið að taka allt að 200 bls meira í einum skóla en hinum. Þetta finnst mér misrétti fyrir nemendur og sérstaklega ef það á að hafa stúdentspróf í íslensku, stærðfræði og ensku. Ef krakkar eru ekki að læra það sama hvernig eiga þau þá að geta farið í sama prófið. þetta á líka við um grunnskóla.”
„Já og nei. En það á að lækka fargjöld í strætó og í bíóhúsum!! Og það var alveg fáránleg hugmynd að lengja skóla árið!! alveg útúr KORTI!!!
„Já en þeir geta lækkað íþróttakostnað.”

