Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




       Nokkur svör barna og unglinga við spurningunni  

    Hafa auglýsingar áhrif á börn?
     
    Ef já, hvernig helst?
    Skiptir máli hvað börnin eru gömul?
    Spurt 2006
     
    „Ég verð að segja já, auglýsingar hafa áhrif á börn. Ef þau sjá auglýsingu á Barbie dúkku og það eru stelpur í auglýsingunni sem leika sér með vöruna þá vilja stelpurnar leika sér með það eins og þær, ég hef haft reynslu af því og ég var alltaf að suða um hitt og þetta út af auglýsingunum!! Það virkar mest á þau ef þau eru frá bilinu 5-10 ára mundi ég segja!"
    13 ára stúlka

    „Góðan daginn... Já sumar auglýsingar hafa áhrif á börn. Ef það eru kannski lítil börn sem degja í umferðarslysum verða kannski börnin hrædd.. Bjór auglýsingar geta haft ill áhrif á börn. Það skiptir miklu máli hvað börnin eru gömul. 1-7 ára börn eru viðkvæmust. 7-12 eru svona já og nei viðkvæm en svo þeir sem eru 13 og eldri eiga nú að þola þetta..."
    13 ára stúlka

    „Ég hata svona auglýsingar með fallegum konum sem eru mjóar og svona þá vildi ég óska að ég væri eins og þær."
    12 ára stúlka

    „Já sérstaklega dömubindi snyrti dót og rakvélar og sléttu og krullujárn."
    12 ára stúlka

    „Já auðvitað hafa þau áhrif á krakka, það eru bara algjörir asnar sem nota krakka til þess að varan þeirra seljist. Auglýsingar eru bara eitthvað sem stimplast inn í heilan á börnum. Og stundum hafa þau varanleg
    áhrif!!!!!!!!!!!"
    13 ára stúlka

    „Já auglýsingar hafa áhrif á flest börn!"
    12 ára stúlka
     
    „Já, sérstaklega ef talað er um vinninga, gjafir og leiki."
    8 ára drengur

    „Já það skiptir máli..!  Já það skiptir máli hvað þau eru gömul.. eins og ef maður er kannski 5 ára og sér mann lenda fyrir bíl í sjónvarpinu þá hefur það kannski eki mjög góð áhrif á börn.. Eftir því sem maður eldist skilur maður meira...."
    13 ára stúlka

    „Já... en samt ekki... það er misjafnt. Sumar auglysignar ná mjög vel til barna...  en í raunini má það ekki... Enna helst með því að sýna flott dót i dótabúð eða einhvað svo bara sagt alltaf ódyrast þá draga krakkarnir foreldra sina þangað t.d. eins og í Leikbæjarauglýsinguni."
    15 að verða 16 ára stúlka
     
    „Mér finns auglýsingar sem eru að auglýsa svona fallegar konur pirrandi ég fer að hugsa að afhverju ég ætti ekki líka að vera svona falleg!!!!!!!!"
    11 ára stúlka
     
    „Já auðvitað, eins og á allt annað fólk."
    14 ára stúlka
     
    „Mikil áhrif..! Dótaauglýsingar, tónleikaauglýsingar, fataauglýsinar, þær hafa miklu meiri áhrif á börn en flestir gera sér grein fyrir."
    15 ára stúlka
     
    „Pottþétt."
    9 ára stúlka

    „JÁ, MIKIL OG BÖRN MYNDU EKKI VERA SVONA FREK EF EKKI FYRIR AUGLÝSINGAR."
    14 ára stúlka