Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Öryggi og slysavarnir

Réttur til verndar
Umferðin
Heimilið
Leikföng

Skóli og leiksvæði
Slysavarnir barna
Ábyrgð hinna fullorðnu

Hægt er að smella á kaflaheitin til að komast í einstaka kafla.
Með því að smella á kaflaheiti í texta er hægt að komast aftur efst á síðu.

Réttur til verndar
Öll börn eiga rétt á að búa  við gott  og öruggt  umhverfi og í  flestum menningarsamfélögum telst það bæði sjálfsagt og eðlilegt að standa vörð um líf og heilsu barna. Á síðustu áratugum hefur í auknum mæli verið lögð áhersla á  rétt  barna til að  búa við örvandi en um leið örugg uppvaxtarskilyrði.  Aukin tæknivæðing og hraði samfélaga nútímans rennir einnig stoðum undir kröfuna um að þessi réttindi séu virt.  Til að geta verndað börnin og fyrirbyggt slys er mikilvægt að þekkja líkamlega getu barna og þroskastig.  Á vefsíðu Árvekni –  slysavarna barna á Lýðheilsustöð er að finna góðar upplýsingar sem vert er að kynna sér: Þroski og geta barna. 

Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna fjallar m.a. um rétt barna til öryggis, heilsuverndar og hæfra umsjónaraðila.  Í 3. grein Barnasáttmálans segir:

Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn.
Með hliðsjón af réttindum og skyldum foreldra eða lögráðamanna, eða annarra sem bera ábyrgð að lögum á börnum, skuldbinda aðildarríki sig til að tryggja börnum þá vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst, og skulu þau í því skyni gera allar nauðsynlegar ráðstafanir á sviði löggjafar og stjórnsýslu.
Aðildarríki skulu sjá til þess að stofnanir þar sem börnum skal veitt umönnun og vernd starfi í samræmi við reglur sem þar til bær stjórnvöld hafa sett, einkum um öryggi, heilsuvernd og fjölda og hæfni starfsmanna, svo og um tilhlýðilega yfirumsjón.

Í  24. gr.  Barnasáttmálans er lögð sú skylda á herðar aðildarríkjum sáttmálans að sjá svo um að allir einkum þó börn og foreldrar, séu vel upplýstir um almennt öryggi barna  ekki síst  slysavarnir þeirra.  Einnig að  börn og foreldrar eigi aðgang að fræðslu, m.a. í slysavörnum. Í þessu ákvæði er lögð áhersla á ábyrgð sem hinar ýmsu stofnanir samfélagsins bera á sviði slysavarna.

Ísland fullgilti Barnasáttmálann árið 1992.  Staðfesting hans felur í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða  og  uppfylla ákvæði samningsins.  Í 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar segir jafnframt: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.”  Ákvæði um öryggi og slysavarnir barna er að finna í ýmsum lögum, reglugerðum og reglum.  Hér í köflunum að neðan er skýrt frá þeim helstu.  Auk þess er þar að finna fróðleik og leiðbeiningar frá ýmsum fagaðilum eins og Árvekni –  slysavörnum barna hjá Lýðheilsustöð, Umferðarstofu, Neytendastofu og Umhverfisstofnun. 

Umferðin
Börn eiga erfitt með að meta hraða, fjarlægð og hvaðan hljóð berast.  Þau eiga erfitt með að setja sig í spor annarra og átta sig á hvað ökumenn bíla hyggjast gera.  Eins eiga þau erfitt með að sjá aðstæður í heild eða samhengi á milli smáatriða.  Ung börn eiga sérstaklega erfitt með að einbeita sér að mörgum atriðum í einu.  Þar sem börn sjá ekki vel í kringum sig er mikilvægt að þau sjáist vel.  Þegar börn eru á ferðinni í umferðinni er því nauðsynlegt að þau beri endurskinsmerki. Víða (t.d. í apótekum) fást endurskinsborðar og -merki. Brýnt er að nota þau bæði á skólatöskur og fatnað barna þannig að þau verði vel sýnileg ökumönnum í myrkrinu. 

Í umferðarlögum nr. 50/1987 er fjallað um atriði sem mikilvægt er fyrir foreldra og forráðamenn barna og unglinga að kynna sér, t.d. hjólreiðar, notkun öryggisbelta og hlífðarhjálma.  Hér á vefsíðu landlæknis er að finna mjög góðan pistil um öryggi barna í umferðinni.   Einnig er mikilvægt að kynna sér  leiðbeiningar um val á öryggisbúnaði fyrir börn í bíl á vefsíðu Lýðheilsustöðvar.

Lögreglustjóri og veghaldari skulu í samráði við viðkomandi skólayfirvöld gera ráðstafanir til að vernda börn gegn hættu í umferðinni á leið þeirra til og frá skóla.

Samkvæmt Aðalnámskrá leikskóla eiga leikskólar að leggja áherslu á reglur sem gilda um umferð og að gæta varúðar á götum.  Börn þurfa að kynnast umferðinni og læra hegðunar- og umferðarreglur jafnskjótt og þau hafa þroska til.  Einnig er umferðarfræðsla nefnd í Aðalnámskrá grunnskóla sem ein af skyldum grunnskólans.

Umferðarstofa starfrækir Umferðarskólann Ungir vegfarendur fyrir öll börn á aldrinum 3– 7 ára og sendir bækur, hljóðbækur og verkefni heim til þeirra. 

Heimilið
Algengustu slys á börnum á aldrinum 0–4 ára eiga sér stað í heimahúsum.  Flest slys á börnum verða á milli kl. 16 og 21, þegar börnin eru farin að þreytast og missa athygli.  Mikilvægt er að skoða heimilið með augum barnsins, líkamlegrar getu þess og þroskastigs; hvað getur verið spennandi að opna, toga í, pota í, stinga upp í sig, klifra upp í o.s.frv.  Ekki ætti að líta af ungu barni nema tryggt sé að aðstæður og umhverfið sé þannig að það geti ekki farið sér að voða.  Oft þarf ekki nema einfaldar breytingar eða tilfæringar til að gera heimilið barnvænna.   Með því að þekkja þroska barnsins geta foreldrar verið skrefi á undan barninu í forvörnum.  Í bæklingnum Er heimilið öruggt?" sem Slysavarnafélagið Landsbjörg gaf út er fjallað um ýmsan útbúnað sem gera heimilið öruggara fyrir smábörn.  Svo er gagnlegt að fara yfir gátlista fyrir heimili ungra barna sem Lýðheilsustöð er með á vefsíðu sinni. 

Hér er efni frá ýmsum aðilum sem gagnlegt er fyrir foreldra og aðra sem hafa börn í sinni umsjá á heimilinu að kynna sér:

Leikföng
Leikfang er neytendavara, sem ætluð er börnum að 14 ára aldri til leikja. Óheimilt er að setja leikföng á markað hér á landi ef hætta er á að þau geti stofnað öryggi eða heilsu notenda og annarra í voða þegar þau eru notuð eins og til er ætlast eða fyrirsjáanlegt er miðað við eðlilega hegðun barna.  Reglugerð um öryggi leikfanga og hættulegar eftirlíkingar nr. 408/1994 fjallar um þær reglur sem gilda hér á landi um öryggi leikfanga.  Í viðauka við reglugerðina eru taldar upp vörur sem ekki falla undir leikfangahugtakið auk þess sem fjallað er um grunnkröfur um öryggi leikfanga, sérstakar hættur, evrópska staðla um leikföng o.fl.   Eingöngu er heimilt að setja á markað leikföng sem merkt eru með CE-merki.  Á leikfanginu eða í notkunarleiðbeiningum sem því fylgir skal varað við hættu sem fylgir tilteknum leikföngum, ásamt upplýsingum um hvernig skuli brugðist við þeirri hættu.  Eftirlit með reglugerðinni um öryggi leikfanga og hættulegar eftirlíkingar hefur Neytendastofa,  www.neytendastofa.is.   Á vefsvæði Neytendastofu er að finna ýmsar upplýsingar um öryggi leikfanga.  Einnig er að finna góða umfjöllun um leikföng og samantekt um vatnsleikföng, kúta og björgunarvesti á vefsíðu Lýðheilsustöðvar.

Skóli og leiksvæði
Skólinn er vinnustaður barna og því er mikilvægt að nemendur njóti þar öryggis og þeirrar verndar sem velferð þeirra krefst.  Samkvæmt Slysaskrá Íslands voru skráð 1751 skólaslys barna á aldrinum 0–14 ára árið 2005.  Í nýsamþykktum breytingum á grunnskólalögum nr. 66/1995  segir að ráðherra skuli í samráði við Samband íslenskra sveitarfélaga setja sérstaka reglugerð um slysavarnir og öryggismál í grunnskólahúsnæði og á skólalóðum.  Reglugerð nr. 519/1996  um lágmarksaðstöðu grunnskóla er sett á grundvelli 20. gr. laga um grunnskóla nr. 66/1995.  Þar segir í 6. gr.:  

Við hönnun nýrra grunnskóla skal afmörkuð skólalóð. Sveitarstjórn ákveður stærð skólalóðar en hún skal þó aldrei vera minni en 2000 fermetrar. Þessu til viðbótar skal að jafnaði miðað við eitt bifreiðastæði á hverja 75 fermetra húsnæðis. Í tengslum við skólalóð skal jafnframt gera ráð fyrir góðri og öruggri aðkomu fyrir langferðabíla. Frágangur leiksvæða á skólalóð skal taka mið af sérþörfum mismunandi aldurshópa í skólanum.

Í reglugerð nr. 225/1995 um starfsemi  leikskóla er fjallað í II. kafla um húsnæði, búnað og útileiksvæði:

II. kafli.  Húsnæði, búnaður og útileiksvæði.
2. gr. Húsnæði leikskóla skal miðað við 6,5 m2 brúttó
[breyt. rg.365/2001] fyrir hvert barn samtímis í leikskóla utan þess tíma sem hópar skarast, þar af verði nettó leik- og kennslurými a.m.k. 3,0 m2 fyrir hvert barn.
3. gr. Við hönnun leikskólahúsnæðis skal gert ráð fyrir að hver deild eða starfseining hafi húsaskipan er miðist við að mögulegt sé að starfa í samræmi við uppeldis- og námssvið í uppeldisáætlun fyrir leikskóla.
Við hönnun húsnæðis skal gert ráð fyrir: Leikstofum, aðstöðu barna til hvíldar og hreyfileikja; snyrtiaðstöðu fyrir börn, fataherbergi með þurrkaðstöðu; geymslum, þ.m.t. geymslu fyrir útiáhöld og vagna þar sem starfsemin gefur tilefni til; skrifstofu leikskólastjóra, viðtalsherbergi, sameiginlegu rými til funda foreldra og starfsfólks, aðstöðu til undirbúnings vinnu starfsmanna; matar- og hreinlætisaðstöðu starfsfólks; eldhúsi, matvælageymslum og ræstiherbergi.
Gera skal ráð fyrir aðgengi og aðstöðu fyrir fötluð börn og börn með sérþarfir og vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk sem vinnur með þeim börnum.
4. gr. Við val á búnaði fyrir börn í leikskóla skal taka mið af aldri og þörfum leikskólabarna. Til búnaðar teljast m.a. innanstokksmunir, leiktæki, ýmis áhöld sem börn nota í leik og starfi, hljómflutningstæki og nýsitæki.
5. gr. Við hönnun nýrra útileiksvæða og þar sem því verður við komið við eldri leikskóla skal miðað við a.m.k. 30-40 m2 fyrir hvert barn. Útileiksvæði skal þó aldrei vera minna en 20 m2 fyrir hvert barn. Heimilt er að miða við færri lóðarfermetra en 20 í leikskólum sem starfræktir eru í eldri hverfum og/eða ef aldurssamsetning barna í viðkomandi skóla gefur tilefni til slíks.
[Síðasta setningin er viðbót í rg. 365/2001]
>Leiksvæði skal hannað með áherslu á sem mesta fjölbreytni í leikaðstöðu og að umhirða þess sé auðveld.

Reglugerð um öryggi leikvallatækja og leiksvæða og eftirlit með þeim nr. 942/2002 gildir fyrir öll leiksvæði innan dyra sem utan, skipulögð fyrir leik barna svo sem í eða við leikskóla, skóla eða gæsluvelli.  Hún gildir jafnframt fyrir leiksvæði sem börn eiga greiðan aðgang að eða ætluð eru börnum, svo sem í eða við fjölbýlishús, frístundahús, tjaldsvæði, verslunarhúsnæði og samkomustaði.  Reglugerðinni er ætlað að stuðla að öryggi barna og annarra með því að tryggja að leikvallatæki og leiksvæði séu hönnuð, frá þeim gengið og þeim haldið við á öruggan og viðurkenndan hátt.  Neytendastofa (áður Löggildingarstofa) hefur eftirlit með því að leikvallatæki á markaði uppfylli kröfur um öryggi, en heilbrigðisnefndir sveitarfélaga hafa eftirlit með leiksvæðum og leikvallatækjum í notkun. Gerð er krafa um að rekstraraðili setji upp innra eftirlit á leiksvæðum og er það þrískipt: 1) Reglubundin yfirlitsskoðun sem fram fer daglega eða vikulega, fer eftir álagi og felst í að greina strax hættu vegna skemmdarverka, veðrunar og slits. 2) Rekstrarskoðun á eins til þriggja mánaða fresti felst í verklegri yfirferð og viðhaldi.  3) Árleg aðalskoðun fagaðila þar sem gerð er heildarúttekt á öryggi leikvallatækja, yfirborðsefna og leiksvæðinu öllu. Sjá Handbók um rekstrarskoðun á leiksvæðum barnaHeilbrigðisnefnd er þó heimilt að láta fjarlægja hættuleg leikvallatæki ef ástæða þykir til.  Engar reglur eru til um tómstundastarfsemi almennt. 

Hér er efni frá ýmsum aðilum sem gagnlegt er fyrir foreldra og aðra sem hafa börn í sinni umsjá að kynna sér:

Slysavarnir barna
Hér á vefsvæði Árvekni – slysavarna barna á vefsíðu Lýðheilsustöðvar er greint frá helstu ástæðum fyrir slysum barna og hvað hægt er að gera til að koma í veg fyrir köfnun (aðskotahlutir í hálsi), augnskaða, áverka á bein, vöðva og liði, bruna, drukknun, eitranir, fall, klemmda fingur, skurði, rispur og skrámur, slys af völdum dýra, stunguóhöpp og tannskaða.  Einnig er vert að benda á umfjöllun um innkaupakerrur og ferðalög með börn útivist.

Eitt af mörgum mikilvægum verkefnum sveitarstjórna er að sjá um slysavarnir í sveitarfélögum.  Í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 segir í 30. gr:

Félagsmálanefnd er skylt, í samvinnu við foreldra, forráðamenn og aðra þá aðila sem hafa með höndum uppeldi, fræðslu og heilsugæslu barna og ungmenna, að gæta velferðar þeirra og hagsmuna þeirra í hvívetna.
Félagsmálanefnd skal sjá til þess að börn fái notið hollra og þroskavænlegra uppvaxtarskilyrða, t.d. leikskóla og tómstundaiðju.  Einnig skal félagsmálanefnd gæta þess að aðbúnaði barna sé ekki áfátt og ekki séu þær aðstæður í umhverfi barna sem þeim stafar hætta af.

Í skipulagsreglugerð nr. 400/1998 segir m.a. í grein 4.2.2: „Skipulagningu íbúðarsvæða skal jafnan hagað þannig að sem minnst umferð verði um húsagötur og að gönguleiðir barna að leiksvæðum, leikskólum og skólum séu öruggar."

Sveitarfélög sinna slysavörnum í formi fræðslu til barna, foreldra og annarra  er starfa með börnum, en ekki síður með úrbótum, þar sem þeirra er talin þörf, til að tryggja betra og öruggara umhverfi fyrir alla íbúa sveitarfélagsins. Að sjálfsögðu ætti það að vera metnaður hverrar sveitarstjórnar að búa sem best að öryggi yngstu íbúa sinna.   Mikilvægt er í þessu sambandi að minna á ákvæði 12. gr. Barnasáttmálans en samkvæmt því eiga börn rétt á að segja skoðun sína í öllum málum er þau varða og ber hinum fullorðnu að taka réttmætt tillit til skoðana  barna með hliðsjón af aldri þeirra og þroska. Sveitarfélögin ættu að nýta sér reynsluheim barna í þessum efnum sem öðrum og gera þau þannig að virkari þátttakendum innan sveitarfélagsins

Ábyrgð hinna fullorðnu
Börn þarfnast verndar, leiðsagnar og öruggs umhverfis.  Foreldrar bera ábyrgð á öryggi barna sinna.  Foreldrum ber skylda til að vernda heilsu barna sinna og búa þeim gott og  öruggt umhverfi.  Það á við á öllum sviðum; í umferðinni, á heimilinu, úti á leiksvæðum, á ferðalögum og í tómstundum.  Það fer síðan eftir  ýmsu hversu færir þeir eru til að rækja þessa skyldu sína.  Þar geta skipt máli þættir eins og þekking foreldranna, lífsviðhorf þeirra og áhugi, en einnig ýmsir þættir af bæði félagslegum og efnahagslegum toga.  Vissulega geta slysin komið fyrir hvar og hvenær sem er  en þau er hægt að forðast með aðgát og réttu vinnulagi. 

Samfélagið allt ber einnig ábyrgð á því að börn búi við góð uppvaxtarskilyrði, þar á meðal öryggi í leikumhverfi sínu. Ýmis lög og reglur eru til sem er ætlað að tryggja að börn njóti réttinda til þess að alast upp í örvandi og öruggu umhverfi.  Lög og reglur veita þó ekki nægilegan stuðning nema þeim sé vel og markvisst fylgt eftir í framkvæmd.  Framkvæmdin skiptir hér sköpum og ekki síst sá þáttur er lýtur að eftirlitinu sem oft og tíðum er veikasti hlekkurinn hvað þetta varðar.  Ábyrgðin er því mikil og liggur hún auk foreldra hjá starfsfólki skóla og leikskóla, lögreglu, veghaldara og sveitarfélaginu.