Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    21. júní 2010

    Líðan barna - Niðurstöður úr könnun

    Í febrúar á þessu ári framkvæmdi umboðsmaður barna könnun á líðan grunnskólabarna í skólanum og heima fyrir.

    Um 1350 nemendur í 5. -7. bekk grunnskóla landsins svöruðu könnuninni. Hópurinn skiptist þannig að um 67% þátttakenda er á höfuðborgarsvæðinu en 33% á landsbyggðinni.

    Rannsóknastofnun í barna- og fjölskylduvernd aðstoðaði við gerð spurningalistanna en Rannsóknir og greining sáu um að vinna niðurstöðurnar. Könnunin er að hluta til samanburðarhæf við könnun sem umboðsmaður barna lagði fyrir sama aldurshóp árið 2003. Samanburður gefur til kynna að börnum líður almennt betur nú en árið 2003. Þó eru vísbendingar um að ákveðnum hluta nemenda líði illa og finni til óöryggis. Það sem veldur umboðsmanni barna m.a. áhyggjum er hlutfall þeirra nemenda sem upplifa sig ekki örugg í skólanum, hvort sem spurt er um skólalóðina eða kennslustofuna.

    Opna glærukynningu á niðurstöðum (PDF).

    Viðameiri kynning á niðurstöðunum verður birt hér á næstunni.  

    Hvað heldur þú að geti orðið til að laga skólann?

    Opin spurning í könnun sem lögð var fyrir nemendur í 5., 6. og 7. bekk 2010



    12. grein Barnasáttmálans

    1. Aðildarríki skulu tryggja barni sem myndað getur eigin skoðanir rétt til að láta þær frjálslega í ljós í öllum málum sem það varða, og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska.
    2. Vegna þessa skal barni einkum veitt tækifæri til að tjá sig við hverja þá málsmeðferð fyrir dómi eða stjórnvaldi sem barnið varðar, annaðhvort beint eða fyrir milligöngu talsmanns eða viðeigandi stofnunar, á þann hátt sem samræmist reglum í lögum um málsmeðferð.