Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga




    03. maí 2010

    Börn yfir kjörþyngd

    Líkamsþyngd barna á höfðuborgarsvæðinu. Smellið á mynd til að skoða skýrsluna. Undanfarin misseri hefur víða verið rætt um líkamsþyngd grunnskólabarna. Í slíkri umræðu er mikilvægt að tekið sé mið af bestu fáanlegu upplýsingum á hverjum tíma en nokkuð hefur borið á ónákvæmni í meðferð bæði talna og hugtaka.

    Í frétt á vefsvæði Lýðheilsustöðvar dags. 16. apríl 2010 segir frá nýútkominni skýrslu sem Lýðheilsustöð og Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins hafa tekið saman og gefið út. Í skýrslunni, sem ber titilinn „Líkamsþyngd barna á höfuðborgargsvæðinu - Er hlutfall barna yfir kjörþyngd hætt að aukast?", er komið á framfæri nýjum tölum og stuttri útlistun á lykilhugtökum sem notuð eru um líkamsþyngd barna.

    Skoða skýrsluna Líkamsþyngd barna á höfuðborgargsvæðinu - Er hlutfall barna yfir kjörþyngd hætt að aukast?

    Fyrri rannsóknir, sem byggja á mælingum á hæð og þyngd 9 ára barna á höfuðborgarsvæðinu, sýna að hlutfall barna sem flokkast yfir kjörþyngd jókst mikið frá árinu 1958 til 1998 en nýjar mælingar sýna ekki afgerandi breytingar á síðustu árum á hlutfalli barna sem eru yfir kjörþyngd.

    Heilsuvernd skólabarna á höfuðborgarsvæðinu hefur frá vetrinum 2002–2003 skráð rafrænt í Ískrá mælingar á hæð og þyngd nemenda í 1., 4., 7. og 9. bekk grunnskóla. Mælingar í 4. bekk benda til þess að hlutfall barna sem er yfir kjörþyngd sé líklega hætt að aukast eftir mikla aukningu á seinni hluta 20. aldar. Mikilvægt er að hafa í huga að þrátt fyrir traustar mælingar á hæð og þyngd barna þá eru engir árgangar eins og Íslendingar eru ennþá fámenn þjóð. Þess vegna mælast oft breytingar á hlutfalli á milli tveggja ára sem endurspegla ekki endilega langvarandi, undirliggjandi breytingar.

    Að lokum
    Í umræðum um börn er mikilvægt að hafa í huga að mikil áhersla á holdafar getur valdið börnum vanlíðan. Þannig telja ýmsir að of mikil áhersla á holdafar í fjölmiðlum sé hluti af flókinni orsakakeðju átröskunar þó auðvitað hafi fleiri þættir áhrif þar á. 

    Margir telja að í opinberri umræðu ætti frekar að leggja áherslu á mikilvægi þess að börn og fullorðnir hreyfi sig nægjanlega mikið og neyti fjölbreyttrar hollrar fæðu í hæfilegu magni í stað þess að einblína á líkamsþyngd. Það ætti að vera ófrávíkjanleg krafa að ef fjallað er um málið á opinberum vettvangi þá sé farið rétt með hlutfallstölur og hugtök.

    Tekið af vefsvæði Lýðheilsustöðvar



    12. grein Barnasáttmálans

    1. Aðildarríki skulu tryggja barni sem myndað getur eigin skoðanir rétt til að láta þær frjálslega í ljós í öllum málum sem það varða, og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska.
    2. Vegna þessa skal barni einkum veitt tækifæri til að tjá sig við hverja þá málsmeðferð fyrir dómi eða stjórnvaldi sem barnið varðar, annaðhvort beint eða fyrir milligöngu talsmanns eða viðeigandi stofnunar, á þann hátt sem samræmist reglum í lögum um málsmeðferð.