Barnaréttarnefndin í Genf
Til að knýja á um að aðildarríkin uppfylli skyldur sínar samkvæmt Samningi Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins hefur verið sett á stofn sérstök nefnd um réttindi barnsins sem staðsett er í Genf. Aðildarríkjunum ber að skila nefndinni skýrslu á fimm ára fresti um það sem þau hafa gert til þess að uppfylla ákvæði hans. Nefndin fer yfir skýrsluna og aflar frekari upplýsinga um ástand mála í viðkomandi ríki, m.a. frá óháðum félaga- og mannréttindasamtökum. Þá mæta fulltrúar ríkjanna á fund nefndarinnar, gera grein fyrir stöðu mála og svara spurningum og gagnrýni nefndarmanna. Nefndin leggur síðan fram álit sitt á því hvernig til hefur tekist með framkvæmd samningsins og tillögur eða ábendingar til aðildarríkisins um það sem betur má fara. Aðildarríkjunum ber að birta skýrslur sínar og álit nefndarinnar opinberlega.
Íslenska ríkið hefur skilað þremur skýrslum til nefndarinnar og er þær og álit nefndarinnar að finna á vef innanríkisráðuneytisins:
1.
2.
3.
Valfrjálsar bókanir
Ísland hefur fullgilt tvær valfrjálsar bókanir við samninginn um réttindi barnsins, sem gerðar voru í maí 2000, – annars vegar um sölu á börnum, barnavændi og barnaklám og hins vegar um þátttöku barna í vopnuðum átökum. Öðlaðist sú fyrrnefnda gildi þann 18. janúar 2002 og sú síðarnefnda þann 12. febrúar 2002.
Prentvæn útgáfa