Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



Önnur rit

Skýrsla umboðsmanns barna til Barnaréttarnefndar Sameinuðu þjóðanna
Í skýrslunni bendir umboðsmaður barna á það sem betur mætti fara varðandi framkvæmd Barnasáttmálans á Íslandi. Skýrslan var afhent Barnaréttarnefnd Sameinuðu þjóðanna í Genf í janúar 2011. Útgefin 2010 á íslensku og ensku..
Opna skýrslu umboðsmanns barna til nefndar Sameinuðu þjóðanna um réttindi barnsins 2010. (pdf) 
Opna Report of the Ombudsman for Children in Iceland to the UN Committee on the Rights of the Child 2010. (pdf)

ub_skyrsla_til_barnarettarnefndar_sth

Líðan barna - könnun umboðsmanns barna 2010
Niðurstöður könnunar um líðan barna sem umboðsmaður barna lagði fyrir um 1350 nemendur 5. - 7. bekkja grunnskóla. Spurt var um líkamlega kvilla,líðan, öryggi, ofbeldi, samskipti nemenda og starfsfólkss í skólanum, vináttu, áhyggjur, tengsl við foreldra o.fl.
Opna skýrsluna „Líðan barna 2010". (pdf)

Hvernig er að vera barn á Íslandi?
Í þessari bók er að finna teikningar og texta leik- og grunnskólabarna sem tóku þátt í verkefni umboðsmanns barna Hvernig er að vera barn á Íslandi? veturinn 2008 til 2009. Í verkunum segja börnin frá reynslu sinni, skoðunum og tjá sig almennt um það hvernig er að vera barn á Íslandi. Bókin er gefin út á 20 ára afmæli Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, 20. nóvember 2009.
Bókin fæst á skrifstofu umboðsmanns barna á kostnaðarverði, kr. 2.000 en ef fólk vill fá hana senda í pósti bætist við kr. 400 í sendingarkostnað. Bókin er einnig seld í bókabúðum Eymundssonar og í safnbúð Þjóðminjasafnsins.
Opna bókina: „Hvernig er að vera barn á Íslandi?”. (pdf)

Ungir Íslendingar í ljósi vísindanna
Bókin er afrakstur málþings sem haldið var á vegum umboðsmanns barna og rektors Háskóla Íslands í nóvember 2004.  Ritið hefur að geyma 36 fræðileg erindi um stöðu og hagi barna og unglinga á Íslandi, auk formála og lokaávarps.  Markmið málþingsins var að leiða saman almenning og fagfólk af ólíkum fræðasviðum til að skiptast á skoðunum, staðreyndum og hugmyndum um málefni barna og unglinga.   Bókin spannar vítt svið félags-, hug- og raunvísinda og var gefin er út í samstarfi við Háskóla Íslands árið 2005. Kr. 500.
Skoða efnisyfirlit bókarinnar „Ungir Íslendingar í ljósi vísindanna
”. (pdf)

 

Heimilisofbeldi gegn börnum á Íslandi.  Höggva - hýða - hirta - hæða - hafna - hrista - hræða
Ofbeldi gegn börnum og refsingum í tímans rás er lýst og gerð grein fyrir umræðu fagfólks og annarra um viðfangsefnið og helstu niðurstöðu rannsókna kynntar.  Bókinni er ætlað að styðja við forvarnir hér á landi, í samræmi við Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.  Bókin, sem gefin er út í samstarfi við Miðstöð heilsuverndar barna árið 2004.

 

Friðhelgi einkalífs
Skýrsla um friðhelgi einkalífs og til trúnaðar af hálfu opinberra starfsmanna.  Skýrslan er unnin af Ragnheiði Thorlacius lögfræðingi fyrir umboðsmann barna árið 2003.  Uppseld.
Opna „Friðhelgi einkalífsins”. (pdf)  

 

Streita í lífi grunnskólabarna á Íslandi
Viðhorf ráðgjafarbekkja umboðsmanns barna og fulltrúa í nemendaráðum grunnskólanna til streitu.  Í skýrslunni eru birtar niðurstöður tveggja kannana um orsakir og einkenni streitu.  Útgefin 2003. Uppseld.
Opna „Streita í lífi grunnskólabarna á Íslandi”. (pdf)  

Skundum á Þingvöll... málþing um börn, unglinga og lýðræði
Skýrsla um málþingið Skundum á Þingvöll... sem haldið var á Þingvöllum hinn 29. mars 2003.  Í skýrslunni er m.a. að finna niðurstöður vinnuhópa er störfuðu á málþinginu auk erinda sem þar voru flutt.  Útgefin 2003. Uppseld. 
Opna „Skundum á Þingvöll...”. (pdf) 

 

Ráðgjafarbekkir umboðsmanns barna - Barnaútgáfa
Skýrsla um ráðgjafarbekki umboðsmanns barna í sérstakri útgáfu fyrir börn.  Í henni eru niðurstöður spurningakannanna um skólann og lífið að skóladegi loknum settar fram á einfaldan og auðskiljanlegan hátt.  Útgefin 2003. Uppseld. 
Opna „Ráðgjafarbekkir umboðsmanns barna - Barnaútgáfa”. (doc)

 

Ráðgjafarbekkir umboðsmanns barna - Aðbúnaður í skólanum og lífið að skóladegi loknum
Niðurstöður tveggja spurningakannana sem umboðsmaður lagði fyrir ráðgjafa sína skólaárið 2002-2003, annars vegar um aðbúnað á vinnustað þeirra - í skólanum og hins vegar lífið að skóladegi loknum.  Útgefin 2003. Uppseld.  
Opna „Ráðgjafarbekkir umboðsmanns barna - Aðbúnaður í skólanum og lífið að skóladegi loknum”. (pdf)

 

Netþing - annað unglingaþing umboðsmanns barna
Skýrsla um framkvæmd og niðurstöður annars NetÞings umboðsmanns barna, sem haldið var haustið 2001.  Þingið fór fram á netinu og voru þingfulltrúar að þessu sinni 16-17 ára framhaldsskólanemar.  Útgefin 2001. Uppseld.
Opna „Netþing - annað unglingaþing umboðsmanns barna”. (pdf)  Open English version. (doc)

 

Netþing - fyrsta unglingaþing umboðsmanns barna
Skýrsla um framkvæmd og niðurstöður NetÞings - unglingaþings umboðsmanns barna, sem haldið var í fyrsta sinn veturinn 1999-2000.  Þingið fór fram á netinu og voru þingfulltrúar 63 að tölu, 21 og 31 stúlka á aldrinum 12-15 ára úr 25 grunnskólum víðsvegar af landinu.  Útgefin 2000. Uppseld.  
Opna „Netþing - fyrsta unglingaþing umboðsmanns barna ”. (pdf) 

 

Einelti kemur öllum við
Skýrsla um ráðstefnu umboðsmanns barna um einelti á Hótel Sögu, 17. október 1998.  Í skýrslunni eru settar fram helstu niðurstöður ráðstefnunnar, en í lok hennar lágu fyrir margar góðar tillögur og ábendingar um einelti og baráttuna gegn því.  Útgefin1999.  Uppseld. 
Opna „Einelti kemur öllum við”. (pdf)

 

Ungir hafa orðið
Ræður framsögumanna á málþingum umboðsmanns barna um réttinda- og hagsmunamál barna og unglinga.  Útgefin 1998.  Uppseld. 
Opna „Ungir hafa orðið”. (pdf) 

 

Mannabörn eru merkileg
Staðreyndir um börn og unglinga.  Í þessari handbók er safnað saman á einn stað, í fyrsta sinn hér á landi, öllum helstu staðreyndum um börn og unglinga á Íslandi.  Útgefin 1998.  Uppseld. 
Skoða efnisyfirlit og formála handbíkarinnar „Mannabörn eru merkileg”. (pdf)

 

Heggur sá er hlífa skyldi
Skýrsla um kynferðisbrot gegn börnum og ungmennum.  Í skýrslunni eru m.a. tillögur umboðsmanns barna til að bæta réttarstöðu barna sem fórnarlamba kynferðisbrota, sbr. bréf umboðsmanns barna til dómsmálaráðherra og félagsmálaráðherra.  Útgefin 1997. Uppseld. 
Opna „Heggur sá er hlífa skyldi”. (pdf) 

 

Meira sólskin - fleiri pizzur
Viðhorf unglinga í vinnuskólum - skoðanakönnun sumarið 1996.  Útgefin 1997. Uppseld. 
Opna „Meira sólskin - fleiri pizzur”. (pdf) 

 

Að mega lýsa og koma á framfæri skoðunum sínum við fullorðna
Niðurstöður könnunar umboðsmanns barna á starfsháttum nemendaráða grunnskóla skólaárið 1995-1996.  Útgefin 1996.  Uppseld. 
Opna „Að mega lýsa og koma á framfæri skoðunum sínum við fullorðna ”. (pdf)

 

Ofbeldi í sjónvarpi
Úttekt á framboði ofbeldisefnis í íslensku sjónvarpi 2.-15. september 1996.  Útgefin 1996. Uppseld. 
Opna „Ofbeldi í sjónvarpi”. (pdf)