Umsagnir til Alþingis og stjórnvalda
Í tölvupósti frá mennta- og menningarmálaráðuneytingu, dags. 16. mars 2012, gafst umboðsmanni barna kostur á að koma með athugasemdir við drög að reglugerð um skólagöngu fósturbarna í grunnskólum. Athugasemdir sína sendi umboðsmaður með tölvupósti dags. 10. apríl 2012.
Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um skráð trúfélög (lífsskoðunarfélög, aðild barna o.fl.), 509. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna með bréfi dags. 23. mars 2012.
Allsherjar- og menntamálnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um grunnskóla (tímabundna skerðingu kennslutíma), 156. mál. Umsögn sína veitt umobðsmaður barna með bréfi dags. 29. nóvember 2011.
Allsherjar- og menntamálnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp um breytingu á lögum nr. 85/2007 um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, 88 mál. Umsögn sína veitt umboðsmaður barna með bréfi dags. 28. október 2011.
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um frumvarp til laga um skattaívilnanir í þágu tilgreindra félagasamtaka (skattfrádráttur vegna gjafa), 107. mál. Umsögn sína veitt umboðsmaður með bréfi dags. 24. nóvember 2011.
Atvinnuveganefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns barna um tillögu til þingsályktunar um norræna hollstumerkið Skráargat, 22. mál. Sameiginlega umsögn sína veittu umboðsmaður barna og talsmaður neytenda bréfi dags. 21. nóvember 2011.
Allsherjarnefnd Alþingis óskaði eftir umsögn umboðsmanns um frumvarp til laga um barnalög (réttindi barns, forsjá, sáttameðferð o.fl.), 778. mál. Umsögn sína veitti umboðsmaður barna í bréfi dags. 20. maí 2011.