Ráðgjafarhópur umboðsmanns barna
Í janúar 2009 kom umboðsmaður barna á fót ráðgjafarhóp ungmenna á aldrinum 13 til 17 ára. Ráðgjafarhópurinn hefur það hlutverk að vera ráðgefandi aðili fyrir embættið um þau málefni sem brenna á börnum og ungmennum í íslensku samfélagi. Hópurinn getur einnig komið með tillögur að verkefnum eða málefnum sem hópurinn telur að umboðsmaður þyrfti að huga að.
Hópurinn fundar einu sinni í mánuði á þriðjudögum frá klukkan 15:30 – 17:00 á skrifstofu umboðsmanns barna á Laugavegi 13.
Skipað er í ráðgjafarhópinn á haustin en þeir sem hafa áhuga á að starfa í hópnum er ávallt velkomið að sækja um með því að senda póst á ub@barn.is eða hringja í síma 552-8999. Þar verður að koma fram nafn, aldur, skóli og af hverju þið viljið starfa í ráðgjafarhóp umboðsmanns barna. Hér er hægt að ná í auglýsingu um ráðgjafarhópinn sem hægt er að hengja upp í skólum, félagsmiðstöðvum og víðar.
Hvað gerði ráðgjafarhópurinn veturinn 2009-2010?
Ráðgjafarhópurinn fjallaði um ýmis mál og aðstoðaði umboðsmann við að móta starf embættisins. Sem dæmi um mál sem ráðgjafarhópurinn ræddi eru: áhrif nemenda í skólaráðum, tómstundir, einelti, innritun í framhaldsskóla, samstarf við erlend ungmennaráð, samskipti á netinu o.fl.
Ráðgjafarhópurinn tók þátt í að skipuleggja Dag barnsins og sýningu sem haldin var af því tilefni í Gerðubergi. Tveir fulltrúar úr hópnum voru kynnar og komu fram í fjölmiðlum.
Ráðgjafarhópurinn fór á ríkisstjórnarfund og afhenti allri ríkisstjórninni bókina Hvernig er að vera barn á Íslandi? í tilefni af 20 ára afmæli Barnasáttmálans.
Ráðgjafarhópurinn, í samstarfi við ungmennaráð UNICEF og Barnaheilla,:
Tveir fulltrúar úr ráðgjafarhópnum fengu sæti í samráðshóp menntamálaráðuneytisins um innritun í framhaldsskóla eftir að hafa sent menntamálaráðherra bréf, sjá nánar hér.
Reynt hefur verið að gera starf ráðgjafarhópsins skemmtilegt, t.d. með því að fara í leiki, keilu og/eða borða eitthvað gott.