








Tölvur og GSM
Réttur til upplýsinga – réttur til verndar
Samskipti með nýjum miðlum
Niðrandi ummæli, myndbirtingar og hótanir
Klám á netinu
Merkingar á tölvuleikjum
Ábyrgð hinna fullorðnu
Hægt er að smella á kaflaheitin til að komast í einstaka kafla.
Með því að smella á kaflaheiti í texta er hægt að komast aftur efst á síðu.
Réttur til upplýsinga – réttur til verndar
Netið er uppspretta fróðleiks og skemmtunar sé það notað á jákvæðan hátt. Með netinu fá börnin þó greiðari aðgang en áður að alls kyns óæskilegu efni, sem þau hafa e.t.v. ekki alltaf forsendur til að vega, meta og hafna. Með aukinni farsímaeign, eigin heimasíðum barna, spjallþráðum og spjallrásum hafa opnast nýjar víddir í samskiptum þar sem mjög auðvelt er að komast í samband við börnin eða koma skoðunum sínum og athugasemdum á framfæri við þau. Þær öru breytingar sem hafa átt sér stað í fjölmiðlun og samskiptum á síðustu árum hafa í för með sér nýjar áskoranir fyrir börn, foreldra og samfélagið allt.
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna fjallar um rétt barna til uppbyggjandi upplýsinga sem og rétt barna til verndar gegn skaðlegu efni. Í 17. grein Barnasáttmálans segir:
17. gr. Aðildarríki viðurkenna mikilvægi fjölmiðla, og skulu þau sjá um að barn eigi aðgang að upplýsingum og efni af ýmsum uppruna frá eigin landi og erlendis frá, einkum því sem ætlað er að stuðla að félagslegri, andlegri og siðferðislegri velferð þess, og líkamlegu og geðrænu heilbrigði. Aðildarríki skulu í þessu skyni:
a) Hvetja fjölmiðla til að dreifa upplýsingum og efni sem börn njóta góðs af félagslega og menningarlega og samræmist anda 29. gr.
b) Stuðla að alþjóðlegri samvinnu við undirbúning, skipti og dreifingu á slíkum upplýsingum og efni af fjölbreyttum uppruna, menningarlegum, þjóðlegum og alþjóðlegum.
...
e) Stuðla að því að mótaðar verði viðeigandi leiðbeiningareglur um vernd barns fyrir upplýsingum og efni sem skaðað getur velferð þess ... Ísland fullgilti Barnasáttmálann árið 1992. Staðfesting hans felur í sér að Ísland er skuldbundið að þjóðarétti til að virða og uppfylla ákvæði samningsins. Í 3. mgr. 76. gr. stjórnarskrárinnar segir jafnframt: „Börnum skal tryggð í lögum sú vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst.”
Samskipti með nýjum miðlum
Heimasíður, spjallrásir, MSN, SMS–skilaboð, tölvupóstur, tölvuleikir á netinu sem og í leikjatölvum eru hluti af daglegu lífi flestra barna og unglinga á Íslandi. Á meðan kostirnir við tæknina eru ótal margir er einnig ýmislegt sem þarf að huga að. Fræðsla og eftirlit foreldra er mjög mikilvægt í þessum efnum auk þess sem sjálfsagt er að nýta sér þau verndarúrræði sem tæknin býður upp á, s.s. eftirlitsforrit.
Auðvelt er að finna efni á netinu sem inniheldur klám, ofbeldi og annað efni sem ekki er við hæfi barna. Með hliðsjón af þessu er mikilvægt að snúa vörn í sókn, að bregðast við þeim hættum sem leynst geta á netinu. Þar eru ekki allir þeir sem þeir segjast vera. Mikilvægt er að foreldrar fylgist með tölvunotkun barna sinna og leitist við að hafa tölvuna sem barnið notar í opnu rými þar sem hægt er að fylgjast með barninu. Í þessu samhengi er þó vert að hafa í huga rétt barna til friðhelgi einkalífs.
Landssamtökin Heimili og skóli hafa beitt sér fyrir vitundarvakningu meðal foreldra um þær hættur sem mögulega finnast við notkun netsins. SAFT – Samfélag – fjölskylda og tækni er vakningarátak um örugga netnotkun barna og unglinga. Markmiðið er að hanna og framkvæma ákveðið, samræmt og markvisst vakningarátak um örugga og ábyrga notkun á netinu og nýjum miðlum og að efla vitund um hvernig hægt er að njóta netsins og nýrra miðla á öruggan, jákvæðan, skemmtilegan og fræðandi hátt. Heimili og skóli veita almenningi ráðgjöf varðandi netið, tölvuleiki og GSM. Síminn er 562 7475. Ýmsan fróðleik og leiðbeiningar er að finna á www.heimiliogskoli.is og www.saft.is, m.a. gátlista fyrir foreldra og börn.
Niðrandi ummæli, myndbirtingar og hótanir
Börn og unglingar hafa í mörgum tilfellum óraunsæjar hugmyndir um það hverjir lesa skrif þeirra á netinu. Þó að sumum börnum finnist ólíklegt að fullorðið fólk lesi nokkurn tíma skrif þeirra á netinu er mikilvægt að ræða þessi mál þannig að öllum sé ljóst að það sem fer á netið eru opinber gögn sem allir hafa aðgang að; foreldrar, ömmur, afar, kennarar o.fl. Einnig þarf að brýna fyrir börnum að efni og myndir sem sett er á netið getur hver sem er skoðað og tekið afrit af og geymt eða sent áfram, jafnvel löngu seinna. Svo virðist sem börn og ungmenni átti sig ekki alltaf á þeim skaða og sárindum sem þau geta valdið með því að birta eitthvað ósæmilegt um annan einstakling eða hafa í hótunum við annað fólk á netinu eða með SMS skilaboðum. Því er mikilvægt að allir átti sig á því að við njótum tjáningarfrelsis en við erum jafnframt ábyrg orða okkar. Réttur okkar til að tjá okkur takmarkast af rétti annarra til að njóta friðhelgi einkalífs.
Oft tengjast niðrandi ummæli og hótanir á netinu eða með SMS eineltismálum. Ef bæði gerandi og þolandi eru grunnskólanemendur er skólinn (skólarnir) góður vettvangur til að fá ráðleggingar varðandi næstu skref. Skólarnir geta tekið á málinu ef eineltið fer fram innan skólans eða ef niðrandi eða neikvæð ummæli um nemendur eru send úr tölvum skólans eða frá netfangi sem skólinn hefur úthlutað nemendum sínum. Þá er tekið á málinu og farið eftir eineltisáætlun viðkomandi skóla. Ef alvarlegt einelti og hótanir eiga sér stað á netinu skal hafa samband við lögreglu. Félagsmiðstöðvarnar og félagsþjónustan geta líka komið að þessum málum.
Í XXV. kafla almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er fjallað um ærumeiðingar og brot gegn friðhelgi einkalífs. Þar segir m.a.:
233. gr. Hver, sem hefur í frammi hótun um að fremja refsiverðan verknað, og hótunin er til þess fallin að vekja hjá öðrum manni ótta um líf, heilbrigði eða velferð sína eða annarra, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 2 árum.
233. gr. a. Hver sem með háði, rógi, smánun, ógnun eða á annan hátt ræðst opinberlega á [mann eða hóp manna]1) vegna þjóðernis þeirra, litarháttar, [kynþáttar, trúarbragða eða kynhneigðar sæti sektum eða fangelsi allt að 2 árum.
233. gr. b. Sá sem móðgar eða smánar maka sinn eða fyrrverandi maka, barn sitt eða annan mann sem er nákominn geranda, og verknaður verður talinn fela í sér stórfelldar ærumeiðingar, skal sæta fangelsi allt að tveimur árum.
234. gr. Hver, sem meiðir æru annars manns með móðgun í orðum eða athöfnum, og hver, sem ber slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 1 ári.
235. gr. Ef maður dróttar að öðrum manni einhverju því, sem verða myndi virðingu hans til hnekkis, eða ber slíka aðdróttun út, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 1 ári.
236. gr. Sé ærumeiðandi aðdróttun höfð í frammi eða borin út gegn betri vitund, þá varðar það fangelsi allt að 2 árum.
Sé aðdróttun birt eða borin út opinberlega, enda þótt sakaráberi hafi ekki haft sennilega ástæðu til að halda hana rétta, þá varðar það sektum eða fangelsi allt að 2 árum.
237. gr. Ef maður bregður manni brigslum án nokkurs tilefnis, þá varðar það sektum, þótt hann segi satt.
Lögreglan á þeim stað þar sem barnið býr eða sýslumannsembættið eftir því sem við á veitir upplýsingar um farveg málsins telji forsjáraðili að brotið hafi verið gegn ofangreindum ákvæðum. Forsenda þess að lögreglan taki á málinu er að forsjáraðili fórnarlambsins kæri ummælin. Á www.logreglan.is er að finna helstu upplýsingar um embættin í landinu. Ef barn hefur haft í hótunum eða skrifað alvarleg niðrandi ummæli um annað barn á netið eða sent þau með SMS–skilaboðum er oft talin ástæða til þess að kalla gerandann (sé vitað hver hann er) ásamt foreldrum í viðtal hjá lögreglu til að gera þeim grein fyrir alvarleika málsins. Barnaverndarnefnd fær alltaf upplýsingar ef barn er grunað um refsivert athæfi.
Klám og kynferðisofbeldi á netinu
Í 210. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 er fjallað um birtingu, innflutning og dreifingu á klámi sem gildir um hvers konar dreifingu, einnig á netinu:
Ef klám birtist á prenti, skal sá, sem ábyrgð ber á birtingu þess eftir prentlögum, sæta sektum eða fangelsi allt að 6 mánuðum.
Sömu refsingu varðar það að búa til eða flytja inn í útbreiðsluskyni, selja, útbýta eða dreifa á annan hátt út klámritum, klámmyndum eða öðrum slíkum hlutum, eða hafa þá opinberlega til sýnis, svo og að efna til opinbers fyrirlestrar, eða leiks, sem er ósiðlegur á sama hátt. [Þegar slíkt efni sýnir börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt getur refsing þó orðið fangelsi allt að 2 árum.
Það varðar ennfremur sömu refsingu, að láta af hendi við unglinga, yngri en 18 ára, klámrit, klámmyndir eða aðra slíka hluti.
Hver sem flytur inn, aflar sér eða öðrum, eða hefur í vörslu sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða sambærilega hluti sem sýna börn á kynferðislegan eða klámfenginn hátt skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum ef brot er stórfellt. Sömu refsingu varðar að flytja inn eða hafa í vörslu sinni ljósmyndir, kvikmyndir eða sambærilega hluti sem sýna börn í kynferðisathöfnum með dýrum eða nota hluti á klámfenginn hátt.
Lögreglan gefur upplýsingar í sambandi við kærur á grundvelli þessarar lagagreinar.
Barnaheill - Save the Children á Íslandi er með ábendingarlínu, þar sem hægt er að senda inn ábendingar um vefsíður sem innihalda myndir þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfenginn hátt. Ábendingarnar eru áframsendar til Ríkislögreglustjóra, þar sem þær eru rannsakaðar. Barnaheill - Save the Children á Íslandi eru í samstarfi við við lögreglu, netþjónustur á Íslandi og eru samtökin í alþjóðasamtökum ábendingalína, INHOPE. Ábendingar um vefsíður þar sem börn eru sýnd á kynferðislegan eða klámfengin hátt er hægt að senda með því að fylla út þessa tilkynningu á vefsíðu Barnaheilla eða með því að senda tölvupóst á netfangið hjalmar@rls.is.
Merkingar á tölvuleikjum
Samkvæmt lögum um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum nr. 62/2006 sem tóku gildi í júlí 2006 er bannað að sýna ungmennum undir lögræðisaldri ofbeldistölvuleiki eða tölvuleiki sem ógna velferð barna. Samkvæmt lögunum er sala og önnur dreifing á slíku efni til barna undir lögræðisaldri bönnuð, þó þannig að allar kvikmyndir má hafa til sýningar opinberlega fyrir börn sem náð hafa 14 ára aldri, enda horfi þau á myndina í fylgd foreldris eða forsjáraðila. Ábyrgðaraðilar samkvæmt lögunum eru þeir sem framleiða kvikmyndir eða tölvuleiki til sýningar eða notkunar hér á landi, hafa kvikmyndir eða tölvuleiki til sýningar eða notkunar hér á landi, hafa kvikmyndir eða tölvuleiki til sýningar, leigu, sölu eða annarrar dreifingar í atvinnuskyni, eftir því sem við á í hverju tilviki. Ábyrgðaraðilarnir bera ábyrgð á framkvæmd laganna undir eftirliti fjölmiðlanefndar og lögreglu. Þeim ber m.a. að setja sér verklagsreglur sem taka til mats á kvikmyndum og tölvuleikjum að fyrirmynd viðurkenndra erlendra skoðunarkerfa. Við flokkun tölvuleikja er stuðst við svokallaðar PEGI–merkingar sem er samevrópskt flokkunarkerfi og er þær merkingar að finna á öllum tölvuleikjum sem fluttir eru inn af félagsmönnum SMÁÍS.
Lög og reglur
Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands
Barnasáttmálinn
Barnalög nr. 76/2003
Barnaverndarlög nr. 80/2002
Lögræðislög nr. 71/1997
Útvarpslög nr. 53/2000
Lög um eftirlit með aðgangi barna að kvikmyndum og tölvuleikjum nr. 62/2006
Lög um eftirlit með viðskiptaháttum og markaðssetningu nr. 57/2005
Almenn hegningarlög nr. 19/1940
Reglugerð um útvarpsstarfsemi nr. 50/2002
Tenglar



Erlendir vefir um fjölmiðla, Netið og tölvuleiki
• Mediawise. National Institute on Media and the Family
• The MediaWise Trust
• Nordisk Information scenter för Medie- och Kommunikationsforskning
• The International Clearinghouse on Children, Youth and Media
• Center for Internetforskning
• UK Children Go Online
• Blog Safety
• Media Awareness Network
• Web Aware
• InSafe (Evrópusambandið)
Af Vísindavefnum
• Eru tölvuleikir vanabindandi?
• Hvaða áhrif hafa tölvuleikir sem innihalda klám og ofbeldi á börn?
• Hafa sjónvarp, tónlistarmyndbönd og tónlist, slæm áhrif á börn og unglinga?
• Eru einhver lög sem banna auglýsingar á áfengi og tóbaki á íslenskum vefsíðum?
• Er löglegt að menn taki ljósmyndir á veitinga- og skemmtistöðum og setji þær svo á Netið?
Af vefsíðu Hugo Þórissonar
• Börn og tölvufíkn


|
Netla
Tóti var einn í Tölvulandi, á tölvuspilið var snjall
|