Ráðgjöf og lesefni um börn og erfiðar breytingar í fjölskyldunni
Börn ráða ekki yfir þeim varnarháttum sem fullorðnir nota undir álagi. Viðbrögð barns við áföllum og álagi fara einkum eftir því hvernig fyrirmyndir þess, þ.e. foreldrarnir, bregðast við erfiðleikunum, hvort sem þau takast á við vandann eða flýja hann. Foreldrar og uppalendur geta gert mikið gagn með því að kynna sér hvað álagsþættir og breytingar geta haft í för með sér fyrir barnið, miðað við aldur þess og þroska, og nýta sér þá þekkingu til að hjálpa barninu að aðlagast breytingum. Handleiðsla foreldra sem leitað hafa faglegrar ráðgjafar eða lesið sér til um sálræna og félagslega erfiðleika barna getur skipt sköpum hvað varðar andlega heilsu barnsins þegar fram í sækir. Þá er oft gagnlegt fyrir foreldra sem eiga í samskiptavanda að þiggja ráðgjöf fagfólks til að leysa mál sín, með hagsmuni barnsins í huga.
Ráðgjöf
Tillögur að lesefni
-
Álfheiður Steinþórsdóttir og Guðfinna Eydal. Barnasálfræði frá fæðingu til unglingsára. Reykjavík. 1995.
-
Benedikt Jóhannsson. Börn og skilnaður. Reykjavík. 1996.
-
Berghildur Erla Bernharðsdóttir: „Ljáðu mér eyra - Börn og áföll” í Uppeldi, 5. tbl. 14. árg, bls. 34-40.
-
Christophersen ER, Mortweet SL. Uppeldisbókin : að byggja upp færni til framtíðar. Gyða Haraldsdóttir og Matthías Kristianse þýddu. Reykjavík. 2004.
-
Gossen, Diane.
Barnið mitt er gleðigjafi. Fanny Kristín Tryggvadóttir og Magni Hjálmarsson þýddu. Álftanes. 2008. Vefsíða:
www.sunnuhvoll.com.
-
Guðný Björk Eydal. „Sorg barna” í Uppeldi, 4. tbl. 9. árg, bls. 37 - 40.
-
Manniche, Vibeke. Bókin um barnið. Meðganga, fæðing og fyrstu sex ár barnsins. Reykjavík. 1997.
-
Sigrún Júlíusdóttir ritstj. Barnafjölskyldur. Samfélag – lífsgildi – mótun. Reykjavík. 1995.
-
Sigrún Júlíusdóttir og Nanna K. Sigurðardóttir. Áfram foreldrar. Rannsókn um sameiginlega forsjá og velferð barna við skilnað foreldra. Reykjavík. 2000.
-
Sigrún Júlíusdóttir, Jóhanna Rósa Arnardóttir og Guðlaug Magnúsdóttir. Ungmenni og ættartengsl. Rannsókn um reynslu og sýn skilnaðarungmenna. Reykjavík 2008.
-
Sæmundur Hafsteinsson í samvinnu við Jóhann Inga Gunnarsson.
Lengi muna börnin. 102 atriði til umhugsunar fyrir foreldra. Reykjavík. 1995. Efni bókarinnar má finnar á vef
Foreldrahúss.
-
Sæunn Kjartansdóttir: Árin sem engin man. Áhrif frumbernskunnar á börn og fullorðna. Reykjavík. 2009.
-
Quinn, Michael og Terri.
Núll til sex ára. Uppeldi barna frá fæðingu til sex eða sjö ára aldurs. Útgefandi á Íslandi er Eignarhaldsfélagið Hof í samvinnu við Ólaf Grétar Gunnarsson og Family Caring Trust. Vefsíða:
www.saga.is/foreldranam.
Fyrir börnin
Upplýsingar á Netinu
Ábendingar um efni sem á heima í þessum lista eru vel þegnar. Vinsamlegast sendið tillögur til
vefstjóra.
Prentvæn útgáfa