Afgreiðslutími er frá 9:00 til 15:00 alla virka daga



27. desember 2005

Rannsóknarsetur í barna- og fjölskylduvernd

Umboðsmaður barna fagnar því að ákveðið hefur verið að stofna Rannsóknasetur í barna- og fjölskylduvernd við félagsráðgjafarskor Háskóla Íslands.  Setrið mun sinna rannsóknum á fjölskyldumálefnum og aðstæðum barna á víðum grundvelli.


09. desember 2005

Verum til staðar fyrir barnið

Heilræði desembermánaðar "verum til staðar fyrir barnið" á vel við nú í desember þegar jólin, hátíð barnanna eru á næsta leyti.


07. desember 2005

Ungir Íslendingar í ljósi vísindanna

Út er bókin Ungir Íslendingar í ljósi vísindanna.  Bókin spannar vítt svið félags-, hug- og raunvísinda og er því mikil fróðleiksnáma fyrir samfélagið allt.


28. nóvember 2005

Fyrir hvern er tölvuleikurinn?

 Umboðsmaður barna vill vekja athygli á nýjum bæklingi um tölvuleiki sem gefinn hefur verið út á vegum SAFT verkefnis Heimilis og skóla. Bæklingnum er ætlað að aðstoða foreldra og aðra við val á tölvuleikjum fyrir börn.


12. október 2005

Dagur borgaravitundar og lýðræðis í skólastarfi

Í dag, 12. október er dagur borgaravitundar og lýðræðis í skólastarfi.




11. október 2005

Jafnrétti, fordómar, áhrif ! - málþing ungmennaráða

Í tilefni af degi lýðræðis og borgaravitundar 12. október ætla ungmennaráð Miðbæjar og Vesturbæjar að halda málþing  sem ber yfirskriftina “Jafnrétti, fordómar, áhrif !”


10. október 2005

Niðurstöður málþingsins "Að lifa og læra í lýðræði".

Út er komin skýrslan "Að lifa og læra í lýðræði".  Í skýrslunni eru dregin saman meginskilaboð sem komu fram á málþingi um lýðræði í skólastarfi, sem haldið var í maí sl. 







3. grein Barnasáttmálans

1. Það sem barni er fyrir bestu skal ávallt hafa forgang þegar félagsmálastofnanir á vegum hins opinbera eða einkaaðila, dómstólar, stjórnvöld eða löggjafarstofnanir gera ráðstafanir sem varða börn.
2. Með hliðsjón af réttindum og skyldum foreldra eða lögráðamanna, eða annarra sem bera ábyrgð að lögum á börnum, skuldbinda aðildarríki sig til að tryggja börnum þá vernd og umönnun sem velferð þeirra krefst, og skulu þau í því skyni gera allar nauðsynlegar ráðstafanir á sviði löggjafar og stjórnsýslu.
3. Aðildarríki skulu sjá til þess að stofnanir þar sem börnum skal veitt umönnun og vernd starfi í samræmi við reglur sem þar til bær stjórnvöld hafa sett, einkum um öryggi, heilsuvernd og fjölda og hæfni starfsmanna, svo og um tilhlýðilega yfirumsjón.